Pakkatilboð – kvef og flensa

Original price was: 15.270 kr..Current price is: 13.990 kr..

(9 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna sólhatt og hvönn, reishi sveppaduft og hóstasíróp.

  • Áhrifaríkur gegn kvefi, flensu, hósta og hálsbólgu
  • Dregur úr ennis- og kinnholusýkingum
  • Hóstastillandi
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Sólhattur og hvönn 200 ml, reishi sveppaduft 60 g og hóstasíróp 100 ml.

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Magn: Sólhattur og hvönn 200 ml, reishi sveppaduft 60 g og hóstasíróp 100 ml.

Notkun – Sólhattur og hvönn: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Reishi sveppaduft: 1 -2 tsk á dag með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.

Notkun – Hóstasíróp: 10 ára og eldri: 1 msk þrisvar til sex sinnum á dag. 3-10 ára: 1 tsk þrisvar til sex sinnum á dag. 1-3 ára: 1/2 tsk einu sinni til þrisvar á dag.

Geymsluþol: Tinktúran Sólhattur og hvönn er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Reishi sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Hóstasíróp er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Varúð: Sólhattur og hvönn: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu. Hóstasíróp: Inniheldur lakkrísrót, ekki fyrir fólk með of háan blóðþrýsting.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Ég er astma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis- og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana.

Inga Harðardóttir
Go to Top