PAKKATILBOÐ - BLÖÐRUBÓLGA

Bakteríudrepandi og bólgueyðandi

Pakkatilboð – blöðrubólga

Original price was: 18.470 kr..Current price is: 16.990 kr..

(5 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna beitilyng og brenninetlu, trönuberjahylki og blöðrubólgute.

  • Bakteríudrepandi og bólgueyðandi
  • Gegn blöðrubólgu og þvagfærasýkingum
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Beitilyng og brenninetla 200 ml, trönuberjahylki 420 mg/60 stk, blöðrubólgute 40 g.

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Magn: Beitilyng og buchu 200 ml, trönuberjahylki 420 mg/60 stk, blöðrubólgute 40 g.

Notkun – Beitilyng og brenninetla: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Trönuberjahylki: 1 hylki tvisvar á dag á milli máltíða.

Notkun – Blöðrubólgute: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran Beitilyng og brenninetla er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita. Trönuberjahylki eru með 3 ára endingartíma. Geymist við stofuhita. Blöðrubólgute er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Teið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Varúð: Beitilyng og brenninetla: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 20.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 20.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Beitilyng og brenninetla:

35% styrkleiki af vínanda, beitilyng* (Calluna vulgaris), sólhattur* (Echinacea angustifolia), ísl. brenninetla* (Urtica dioica), ísl. sortulyng* (Arctostaphylos uva-ursi), króklappa* (Arctium lappa), gentian (Gentiana lutea)

Trönuberjahylki:

Trönuber/Organic Cranberry (Vaccinium macrocarpon)*.

Blöðrubólgute:

Ísl. vallhumall* (Achillea millefolium), ísl. brenninetla* (Urtica dioica), ísl. mjaðjurt* (Filipendula ulmaria), ísl. sortulyng (Arctostaphylos uva-ursi).

 

5 umsagnir um Pakkatilboð – blöðrubólga

  1. Áshildur Sigurðardóttir (verified owner) –

    Frábærar vörur.

  2. Guðrún (verified owner) –

    Mæli með.

  3. Áslaug Sólveig Guðmundsdottir (verified owner) –

    Góður árangur með þessum vörur

  4. Þuríður B. (verified owner) –

    Ég mæli eindregið með þessari vöru.

  5. Þuríður Baldursdóttir (verified owner) –

    Eftir 3ja mánaða notkun get ég gefið þessum vörum bestu meðmæli, hef getað haldið mér sýkingarfrírri.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top