Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. tvo til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.
Magn: Túrmerik og engifer 200 ml, þrusuþrenna 120 g, triphala 120 stk og bólgueyðandi te 40 g.
Notkun – Túrmerik og engifer: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Notkun – Þrusuþrenna: 1-2 tsk á dag með morgunmat. Hrærist út í heitt vatn, graut eða safa.
Notkun – Triphala: Tvær töflur tvisvar á dag, tvær á morgnana og tvær með kvöldmat.
Notkun – Bólgueyðandi te: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Tinktúran Túrmerik og engifer er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Þrusuþrenna sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Bólgueyðandi te er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Triphalatöflur eru með 3 ára endingartíma. Allar vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.
Varúð: Túrmerik og engifer: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir ennþá.