Pakkatilboð – extra rakagefandi

13.990 kr.

(31 umsagnir frá notendum)

Er húðin eins og sandpappír? Þetta pakkatilboð inniheldur 24 stunda krem (sjá í VOGUE) og græðikrem sem eru einstaklega öflugir rakagjafar fyrir þurra húð í andliti. Veita djúpa næringu og draga úr fínum línum og merkjum öldrunar.                P.S. Búðu þig undir að fólk spyrji þig hvaða krem þú notar!

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

2x 50 ml

Lýsing

Notkun: Berðu 24 stunda kremið á kvölds og morgna en græðikremið nokkrum sinnum yfir daginn. Má nota á allan líkamann, þ.m.t. andlit, hársvörð og í kringum augu. Kremin henta vel undir farða.

24 STUNDA KREM

Áhrif:

  • Dregur úr fínum línum og merkjum öldrunar
  • Öflugur rakagjafi
  • Dregur úr roða og rósroða
  • Nærir, þéttir og sléttir húð
  • Inniheldur náttúrulega sólarvörn
  • Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum

Húðgerð: Fyrir venjulega, þurra og þroskaða húð.

GRÆÐIKREM

Áhrif:

  • Öflugur rakagjafi fyrir þurra húð
  • Græðir og róar exem og sóríasis
  • Dregur úr kláða og bólgum
  • Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum

Húðgerð:  Fyrir þurra eða skaddaða húð.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Kremin eru með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Græðikrem

Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, kvöldvorrósarolía* (Oenothera biennis), E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, lavender* (Lavendula officinalis), piparmynta* (Mentha piperita).

24 stunda krem

Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, apríkósukjarnaolía* (Prunus armeniaca), E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, rósaolía (Rosa damascena), neroli* (Citrus aurantium).

Endurvinnsla

  • 100% endurvinnanleg glerkrukka
  • 100% endurvinnanlegt lok úr polypropylene/polyethylene plasti
  • 100% endurvinnanlegar umbúðir – FSC vottaður pappír úr sjálfbærum skógum
  • Blek er unnið úr náttúrulegu endurnýtanlegu hráefni

31 umsagnir um Pakkatilboð – extra rakagefandi

  1. Ásta Steingerður Geirsdóttir (verified owner)

    Græðikremið fær sömu einkunn og hér að ofan.
    Langr að prófa það sem andlitskrem samhliða 24 st.kreminu.
    24 st.kremið hef ég notað í nokkur ár og er ekkert á leiðinni að skipta yfir í annað….nema þá kannski Græðikremið. Ég er mjög ánægð með þær vörur sem ég hef notað frá Önnu Rósu. Beint úr ísl.náttúru. Takk <3

  2. Gerður Róbertsdóttir (verified owner)

    Ánægð með kremin þín, mættir vera með eitt ennþá feitara fyrir frostdagana

    • Anna Rósa grasalæknir (store manager)

      Sárasmyrslið gæti hentað fyrir frostdagana, það er tölvert um það að útivistarfólk noti það í andlitið til að verja gegn kulda.

  3. Alda Guðlaug Ólafsdóttir (verified owner)

    Ég þarf að prófa lengur

  4. Guðný Guðmundsdóttir (verified owner)

    þær eru bestar

  5. Ásta Steingerður Geirsdóttir (verified owner)

    Eg gef bæði 24 st.kremi og græði kremi 5, en tek þó græðikremið fram yfir. Hef notað 24 st.í mörg ár en er nýlega farin að kaupa græðikremið líka. Einfaldlega dásamlegt og hentar mér fullkomlega.

  6. Guðrún Helga Jónsdóttir (verified owner)

    Kremin hennar Önnu Rósu hafa algerlega bjargad minni vidkvaemu húd. Ekkert krem gat ég notad en nú lídur mér vel og nota öll möguleg krem Önnu Rósu. 

  7. magnús e. (verified owner)

    þetta eru mjög góðar vörur

  8. Steinunn Einarsdottir (verified owner)

    Ég hef keypt og nota bæði 24 stunda andlits kremið og græði kremið sem gefa þægilega tilfiningu að bera á andlit og háls. Ég var með mjög þurra húð en hún hefur jafnað sig þó nokkuð, ég get þessvegna mælt með þeim báðum.

  9. Dagmar Jóhannesdóttir (verified owner)

    Ég er mjög ánægð með vöruna.

  10. Valgerður Inga (verified owner)

    Frábærar vörur. 24 stunda kremið er besta andlitskrem sem ég hef prófað og Græðikremið er algjör snilld

  11. Margrét Erlingsdóttir (verified owner)

    Húðin í andlitinu er miklu jafnari, mýkri og ljómar meira en áður.
    Ég nota græðikremið á varirnar á mér og þurra bletti á líkamanum. Það virkar mjög vel.

  12. Guðrún (verified owner)

    Æðisleg vara

  13. Erla Finnsdóttir (verified owner)

    Mjög góðar vörur

  14. Hulda Þráinsdóttir (verified owner)

    Einfaldlega frábær krem 🙂

  15. Susi (verified owner)

    Eftir langan útiveradagur er græðandi kremið málið

  16. Anonymous (verified owner)

    Mjög góðar vörur sem ég nota daglega

  17. Anonymous (verified owner)

    Langbesta dagkremið og græðikremið mjög gott líka.

  18. Margrét Guðmundsdóttir (verified owner)

    Er með rósroða og líkaði vel við þessi krem

  19. Hulda Þráinsdóttir (verified owner)

    Einu kremin sem henta minni húð. Hef ekki notað annað í langan tíma. Ég hreinlega elska 24stunda kremið 🙂

  20. Hulda Þráinsdóttir (verified owner)

    Einstaklega góð krem, bæði 24stunda kremið og græðikremið

  21. Fjóla Aðalbjargardóttir (verified owner)

    Klárlega sú allra besta tvenna sem ég hef notað i andlitið á mér bjargaði mér algjörlega mæli 100% með 🩷

  22. Ragnhildur Ólafsdóttir (verified owner)

    Ég er búin að nota þetta krem í um 1 ár. Húðin er sléttari og fallegri með notkun þess.

  23. Hulda Þráinsdóttir (verified owner)

    Einfaldlega góð krem.

  24. Þórunn Elin Halldórsdóttir (verified owner)

    Alveg frábærar vörur…

  25. Rósa G. Erlingsdóttir (verified owner)

    Ég panta 24 stunda kremið hennar Önnu Rósu reglulega. Finnst frábært að nota sama kremið sem dag- og næturkrem. Það dregur úr roða og eykur vellíðan. Ég nota græðakremið aðallega sem handáburð. Ég er með exem á höndunum og finn að það dregur úr roða og kláða.

  26. Hulda Sigurdís Þráinsdóttir (verified owner)

    Einstaklega góð krem. Ég nota 24 stunda kremið á morgnana, stundum undir léttan farða. Græðikremið nota ég svo á hreina húðina á kvöldin.

  27. Magnea Sigríður Guttormsdóttir (verified owner)

    Besta andlitskrem sem ég hef notað um æfina. Mun nota þetta andlitskrem þar til yfir líkur, takk fyrir.

  28. Hulda Þráinsdóttir (verified owner)

    Frábær krem 🙂

  29. Fjóla (verified owner)

    Frábærar vörur og frábær þjónusta.

  30. Sædís Kristjana Gígja (verified owner)

    Frábær tvenna sem gefur húðinni góðan og heilbrigðan blæ.

  31. Hulda Þráinsdóttir (verified owner)

    Einfaldlega stórkostleg krem 🙂

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top