Álags tvenna sveppaduft 120 g

11.490 kr.

(5 umsagnir frá notendum)

Ertu undir álagi og vantar meiri orku? Er þetta tvennan sem þú þarfnast?

Þessi blanda inniheldur Cordyceps og Lion’s Mane sveppaduft sem eykur orku og úthald og dregur úr álagi. Tilvalið fyrir þá sem eru undir miklu álagi eins og t.d. íþróttafólk, heilbrigðisstarfsmenn, námsmenn í prófum, foreldra með ungabörn og þá sem eru með króníska sjúkdóma.

  • Lion’s Mane dregur úr kvíða og álagi
  • Cordyceps eykur orku og úthald
  • Báðir sveppirnir draga úr bólgum og styrkja ónæmiskerfið

 

Þessir sveppir eru ræktaðir á lífrænt vottuðum búgarði í Bandaríkjunum.

120 g

SKU: 2109 Category:

Lýsing

Anna Rósa mælir með samfelldri notkun í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.

Notkun: 1-2 tsk. á dag með morgunmat. Hrærið út í vatn, hristinga, safa eða graut.

Formúla: 100% náttúruleg vara pökkuð af Önnu Rósu grasalækni. Þessi sveppir eru ræktaður á lífrænt vottuðum búgarði í USA. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Innihalda EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Sveppaduftið er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Sveppaduftið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Lion’s Mane sveppaduft* (Hericium erinaceus).
Cordyceps sveppaduft* (Cordyceps sinensis).

 

5 umsagnir um Álags tvenna sveppaduft 120 g

  1. Guðrún S Þ. (verified owner)

    Þessi vara lofar góðu.

  2. Helga Margrét Guðjónsdóttir (verified owner)

    Ég gaf dóttur minni þetta vegna álags í skóla. Hún er mjög anægð með þetta finnur fyrir sma meira úthaldi í prófum

  3. Elín Guðnadóttir (verified owner)

    Frábært efni 🙂

  4. Anna Björg (verified owner)

    Næ að slaka betur á og sef betur

  5. Anna Björg (verified owner)

    Ég er orkumeiri og sef betur

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top