Ertu með viðkvæma húð? Hefurðu prófað allt og vantar þig krem sem virka? Ég hef sett saman pakkatilboð svo þú getir uppgötvað hvað er best fyrir þína húð. Ég framleiði húðvörur úr íslenskum jurtum og lífrænum innihaldsefnum. Þær eru ekki bara góðar fyrir húðina heldur líka 100% umhverfisvænar. Ég bý sjálf til allar vörur í höndunum af alúð og ást.
Viltu draga úr fínum línum?
Gefðu húðinni nauðsynlegan raka og dragðu úr fínum línum með pakkatilboðinu – rakagefandi.
Þó hrukkur séu óhjákvæmilegur hluti af því að eldast geta réttu húðvörurnar hægt á öldrun húðarinnar og gefið henni sléttara yfirbragð.
Er húðin eins og sandpappír?
Endurnýjaðu ljóma og mýkt húðarinnar með pakkatilboðinu – rakagefandi. Ef húðin er mjög þurr mæli ég með pakkatilboðinu – extra rakagefandi.
Rakakremin í þessum pakkatilboðum viðhalda langvarandi raka og gefa djúpa næringu og vörn.
Er bólan sem virkaði ósköp saklaus í gær orðin að skrýmsli?
Hefurðu prófað (næstum) allt til að losna við hana? Notaðu náttúrulega lausn við bólum.
Mjög áhrifaríkur bóluhreinsir ásamt dagkremi fyrir blandaða húð er hin fullkomna blanda gegn bólum. Skjótvirk og áhrifarík leið sem hefur virkað fyrir þúsundir Íslendinga.
Ertu með kláða? Dreymir þig um húð sem er til friðs?
Dragðu úr kláða, bólgum og þurrki í húð með pakkatilboðinu – græðandi.
Notuð saman eru sárasmyrsl og græðikrem einstaklega græðandi og kláðastillandi. Þau eru sérstaklega áhrifarík á exem, sóríasis, sár og sprungur.
Veldur rósroði vanlíðan?
Pakkatilboðið – rósroði dregur úr rósroða og bólum í andliti.
Þessi þrenna hefur bólgueyðandi og kælandi áhrif á rósroða ásamt því að innihalda náttúrulega lausn gegn bólum.
Kallar húðin þín á smá auka ást?
Pakkatilboðið – líkami er hin fullkomna blanda þegar þú þarft að dekra við allan líkamann!
Þessi þrenna inniheldur einstaklega rakagefandi krem sem mýkja og græða frá toppi til táar. Húðin verður silkimjúk og geislar af heilbrigði.
Varstu að bóka flug til Tene?
Settu lúxusprufur í veskið og taktu með í næsta ævintýri því þær tryggja öflugan raka og heilbrigða húð.
- 24 stunda kremið gefur góðan raka
- Handáburðurinn mýkir þurrar hendur
- Sárasmyrslið er frábær varasalvi. Gott við öllu öðru líka.
Enn ein frunsan?
Ertu búin að reyna allt? Þetta pakkatilboð við frunsum er áhrifarík og skjótvirk leið til að losna við frunsur.
Þessi tvenna inniheldur lúxusprufur af bóluhreinsi og sárasmyrsli sem draga úr kláða, sviða og pirringi.
Hvað finnst þér um þessa grein?