Pakkatilboð – vatnslosandi

Original price was: 7.980 kr..Current price is: 7.290 kr..

(16 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 2 vörur: tinktúruna fíflablöð og birki og vatnslosandi te.

  • Vatnslosandi og bólgueyðandi
  • Dregur úr bjúg
  • Dregur úr liðverkjum vegna vökvasöfnunar
  • Mælt er með að nota báðar vörurnar samhliða

Smelltu til að lesa um lækningamátt birkis.

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Fíflablöð og birki 200 ml og vatnslosandi te 40 g.

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.

Magn: Fíflablöð og birki 200 ml og vatnslosandi te 40 g.

Notkun – Fíflablöð og birki: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Vatnslosandi te: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran fíflablöð og birki er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Vatnslosandi te er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Varúð: Fíflablöð og birki: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.
Go to Top