PAKKATILBOÐ - ÓNÆMISKERFIÐ

Fyrirbyggjandi og styrkjandi

Pakkatilboð – ónæmiskerfið

Original price was: 25.470 kr..Current price is: 22.990 kr..

(21 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna sólhatt og hvönn, þrusuþrennu sveppaduft og teblöndu fyrir ónæmiskerfið.

  • Sérvaldar jurtir sem styrkja ónæmiskerfið
  • Forvörn gegn kvefi, flensu, hósta og hálsbólgu
  • Dregur úr ennis- og kinnholusýkingum
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Sólhattur og hvönn 200 ml, þrusuþrenna sveppaduft 120 g og te fyrir ónæmiskerfið 40 g

Sjá forvarnarskammt og fulla skammtastærð í lýsingu. 

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Magn: Sólhattur og hvönn 200 ml, þrusuþrenna sveppaduft 120 g og teblanda fyrir ónæmiskerfið 40 g.

Forvarnarskammtur – Sólhattur og hvönn: 1 tappi á dag með morgunmat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Forvarnarskammtur  – Þrusuþrenna sveppaduft: 1 tsk á dag með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.

Forvarnarskammtur  – Teblanda fyrir ónæmiskerfið: Settu 1 msk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu tvo bolla á dag.

Fullur skammtur – Sólhattur og hvönn: 1 tappi þrisvar á dag. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Fullur skammtur  – Þrusuþrenna sveppaduft: 1-2 tsk á dag með morgunmat. Hrærist út í heitt vatn, graut eða safa.

Fullur skammtur  – Teblanda fyrir ónæmiskerfið: Settu 1 msk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu fjóra bolla á dag.

Geymsluþol: Tinktúran Sólhattur og hvönn er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Þrusuþrenna sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Teblanda fyrir ónæmiskerfið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Varúð: Sólhattur og hvönn: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Ég er astma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis- og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana.

Inga Harðardóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 20.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 20.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Sólhattur og hvönn:

40% styrkleiki af vínanda, hvönn* (Angelica archangelica), sólhattur* (Echinacea angustifolia), vallhumall* (Achillea millefolium), garðablóðberg* (Thymus vulgaris), engifer* (Zingiber officinalis), cayennepipar* (Capsicum sp.).

Þrusuþrenna sveppaduft:

Reishi (Ganoderma lucidum), turkey tail (Trametes versicolor), lion’s mane (Hericium erinaceus).

Teblanda fyrir ónæmiskerfið:

Íslensk mjaðjurt (Filipendula ulmaria), íslenskur vallhumall (Achillea millefolium), íslensk hvannarfræ (Angelica Archangelica).

21 umsagnir um Pakkatilboð – ónæmiskerfið

  1. Ágústa H. (verified owner) –

    Ég fann næstum strax að einkennin minnkuðu, þ.e.a.s. Kvef einkennin nefstífla og hósti, fæ mér pottþétt þennan pakka aftur næst.

  2. Björn Jónsson (verified owner) –

    Vona það besta, ekki mikil reynsla enn

  3. Katrín Þorbjörg Andrédóttir (verified owner) –

    Er að nota þetta í fyrsta skipti og er mjög ánægð hingað til en ekki er komin mikil reynsla ennþá

  4. Ulla Rolfsigne Pedersen (verified owner) –

    Ég mæli með að nota jurtir til að styrkja ónæmiskerfi okkar. Það hef ég gert í mörg ár og hefur það reynst mér vel.

  5. Signý S. (verified owner) –

    Hef verið að njóta vörur frá Önju Rósu í nokkur ár og er alltaf jafn ánægð bæði með vörurnar og þjónustu hennar.
    Mæli eindregið með þessum pakka til styrkingar á ónæmiskerfi

  6. Lara Jonsdottir (verified owner) –

  7. Guðlaug Snorradóttir (verified owner) –

    Þetta eru greinilega frábærar vorur tek þetta inn þrisvar á dag og finn styrkingu mun halda þessu áfram mín líkama til góðs

  8. Þyrí Marta Baldursdóttir (verified owner) –

  9. Þrymur Sveinsson (verified owner) –

  10. Inga Harðardóttir (verified owner) –

    Ég hef í gegnum tíðina notað vörur Önnu Rósu með góðum árangri. Ég ákvað að prófa pakkann til styrktar ónæmiskerfinu til að vera betur í stakk búin til að takast á við það álag sem ég upplifi í dag. Í stuttu máli sagt þá er ég mjög ánægð og finn þegar jákvæðan mun á heilsu og líðan.

  11. Kristín Birna Ólafsdóttir (verified owner) –

    Frábær pakki. Teið gott á bragðið og vellíðan sem fylgir því að nota þessar vörur. Takk fyrir mig

  12. Ásdís Ámundadottir (verified owner) –

    Mæli eindregið með þessari þrennu ❤✌

  13. Anna Sigurðardóttir (verified owner) –

    Gerði gæfumuninn um að ná bata af langvinnri haustflensu! Takk fyrir mig Anna Rósa!

  14. Ágústa H. (verified owner) –

    Þessi þrenna hefur haldið kvefpestum frá mér og svo er teið mjög gott.

  15. Kristjana Hilmarsdóttir (verified owner) –

    Ekki alveg komin reynsla

  16. Kristjana Sveinsdóttir (verified owner) –

    Hef trú á þessu

  17. Birna Vilhjálmsdóttir (verified owner) –

    Virkar vel en bragðið mætti vera betra af drykknum 😉

  18. Gunnar Jóhannsson (verified owner) –

    Hef notað þessar vörur um hríð og er allur að hressast, mæli hiklaust með vörunum frá Önnu Rósu 🙂

  19. jonina K. (verified owner) –

    Góðar vörur sem standa fyrir sínu og frábær og góð þjónusta

  20. Ása Pálsdóttir (verified owner) –

    Auðvelt að nota og er greinilega að vinna á kvefinu sem hefur verið að angra mig lengi.

  21. Anný Helena Hermansen (verified owner) –

    Er nýbyrjuð að taka þetta og spennt að sjá árangurinn, vonandi hætti ég að vera lasin svona oft

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top