PAKKATILBOÐ - KVEF & FLENSA

Styrkir ónæmiskerfið

Pakkatilboð – kvef og flensa

Original price was: 27.470 kr..Current price is: 24.990 kr..

(9 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna sólhatt og hvönn, þrusuþrenna sveppaduft og hóstasíróp.

  • Áhrifaríkur gegn kvefi, flensu, hósta og hálsbólgu
  • Dregur úr ennis- og kinnholusýkingum
  • Hóstastillandi
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Sólhattur og hvönn 200 ml, þrusuþrenna sveppaduft 120 g og hóstasíróp 100 ml.

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Magn: Sólhattur og hvönn 200 ml, þrusuþrenna sveppaduft 60 g og hóstasíróp 100 ml.

Notkun – Sólhattur og hvönn: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Þrusuþrenna sveppaduft: 1 -2 tsk á dag með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.

Notkun – Hóstasíróp: 10 ára og eldri: 1 msk þrisvar til sex sinnum á dag. 3-10 ára: 1 tsk þrisvar til sex sinnum á dag. 1-3 ára: 1/2 tsk einu sinni til þrisvar á dag.

Geymsluþol: Tinktúran Sólhattur og hvönn er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Þrusuþrenna sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Hóstasíróp er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Varúð: Sólhattur og hvönn: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu. Hóstasíróp: Inniheldur lakkrísrót, ekki fyrir fólk með of háan blóðþrýsting.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Ég er astma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis- og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana.

Inga Harðardóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 20.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 20.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Sólhattur og hvönn:

40% styrkleiki af vínanda, hvönn* (Angelica archangelica), sólhattur* (Echinacea angustifolia), vallhumall* (Achillea millefolium), garðablóðberg* (Thymus vulgaris), engifer* (Zingiber officinalis), cayennepipar* (Capsicum sp.).

Þrusuþrenna sveppaduft:

Reishi sveppaduft (Ganoderma lucidum), turkey tail (Trametes versicolor), lion’s mane (Hericium erinaceus).

Hóstasíróp:

Vatn, sykur, blóðberg* (Thymus sp.), lakkrísrót* (Glycyrrhiza glabra), engifer* (Zingiber officinale), piparmynta* (Mentha x piperita), engifertinktúra* (alkóhól, engifer), blóðbergstinktúra (alkóhól, blóðberg).

9 umsagnir um Pakkatilboð – kvef og flensa

  1. Anonymous (verified owner) –

    Mér fín ekki Vikar á mig. mjög sterkt Efni.

  2. Merete (verified owner) –

    Pabbi fer hreisandi eftir marga vikur með vírúskvef

  3. Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir (verified owner) –

    Fékk slæma hálsbólgu og kvef og þetta hjálpaði mér mjög vel. Mæli með þessu 😊

  4. Elín Kolka (verified owner) –

    Mjög góð vara, sólhattur og hvönn rífa vel í, bragðið venst vel

  5. Rannveig T. (verified owner) –

    Notaði þennan pakka þegar ég fékk Covid. Var mjög hjálplegt, tinktúran sterk og góð og hóstasaftið frábært. Fór létt gegnum pestina og tel að þessar jurtir hafi átt stóran þátt í því.

  6. Ragnhildur Ó. (verified owner) –

    Hóstasaftin hjálpaði mér. Mér líkaði ekki við hinar vörurnar.

  7. Margrét (verified owner) –

    Frábær hóstasaft.

  8. Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir (verified owner) –

    Mæli með þessum vörum

  9. Anný Helena Hermansen (verified owner) –

    Búin með þennan skammt og hann virkaði vel 🙂

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top