Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða, ásamt ashwagandha, í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.
Magn: Burnirót 200 ml, lion’s mane sveppaduft 60 g og róandi te 40 g.
Notkun – Burnirót: 1 tappi með morgunmat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Notkun – Lion’s mane sveppaduft: 1 tsk á dag með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.
Notkun – Róandi te: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Tinktúran Burnirót er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita. Lion’s mane sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Sveppaduftið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita. Róandi te er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Teið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.
Varúð: Burnirót: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.
Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar. |
Vilborg Karlsdóttir (verified owner) –
Eiríkur tryggvason (verified owner) –
Berglind Kvaran Ævarsdottir (verified owner) –
Flottar vörur
Anonymous (verified owner) –
Mjög gott.
Anonymous (verified owner) –
Bætir svefninn minn, fæ góða slökun fyrir taugakerfið. Lundin verður því léttari.
Esther (verified owner) –
Þetta var gjöf. Geri ráð fyrir að þetta virki vel
Guðrún (verified owner) –
Allt mjög virkt
Anonymous (verified owner) –
mjög öflugar remedíur!
INGA Matthiasd (verified owner) –
Góðar vörur
Helga Hjaltadóttir (verified owner) –
Tók inn skv. ráðlögðum skammti samt bara eina tsk. eða msk. og einu sinni á dag. Tók líka ASWAGANDHA einu sinni á dag. Eftir 3 daga var ég komin með stöðugan höfuðverk og hætti þá allri inntöku. Veit ekki hvað ég á að gera næst.
Anna Rósa grasalæknir (store manager) –
Sæl Helga, það er virkilega leitt að heyra að þetta hefur farið svona í þig. Það hljómar eins og þú sért með óþol fyrir einhverri jurtinni í þessum pakka, það er sjaldgæft en er samt alltaf möguleiki. Ég ætla að ráðleggja þér eftirfarandi ef þú ert til í að prófa aftur. Bíða núna í 3 daga og taka svo 1/2 tsk á dag af Lion‘s mane í 3 daga. Ef það fer vel í þig og þá skaltu bæta við teinu en bara 1 tsk í bolla, 1 bolla á dag í 3 daga. Ef það gengur þá skaltu bæta við ½ tsk á dag (blanda út í vatn) af ashwagandha í 3 daga. Síðast skaltu svo prófa burnirót ½ tsk (blanda út í vatn) á dag og sjá hvernig það fer í þig. Ef þetta fer allt vel í þig núna geturðu gert tilraunir með að auka skammtastærðirnar upp í fulla skammta en passaðu að gera það bara fyrir eina vöru í einu. Sumir þurfa líka einfaldlega minni skammtastærðir en aðrir. Endilega láttu okkur vita á onnuson@annarosa.is hvernig þetta gengur og ef þú ert með einhverjar frekari spurningar. Gangi þér vel!
Alfreð Sigurjónsson (verified owner) –
Þetta lofar góðu ég þarf bara að vera duglegur að nota þetta reglulega og koma mér upp rútínu. 😃
Margrèt (verified owner) –
Mér finnst þessar vörur vera að virka vel fyrir mig.
Anonymous (verified owner) –
Þetta er að virka mjög vel fyrir mig
Elín Helena (verified owner) –
Tók líkama minn um hálfa tinktúru að venjast en finn mikið fyrir aukinni einbeytingu og orku frá burnirótinni. Finnst ég muna meira með hjálp Lions Mane. Teið mjög bragðgott