- Við svefnleysi
- Róandi og svæfandi
- Eykur líkur á að sofna
- Stuðlar að dýpri samfelldum svefni
- Dregur úr kvíða og streitu
Þessi tinktúra er í pakkatilboðinu – álag og svefnleysi.
200 ml
4.990 kr.
Þessi tinktúra er í pakkatilboðinu – álag og svefnleysi.
200 ml
Anna Rósa mælir með samfelldri notkun í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.
Notkun: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Tinktúran er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúrur er framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þeirra. Geymist við stofuhita.
Varúð: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.
Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar. |
Þegar ég tek tinktúruna hennar Önnu Rósu við svefnleysi þá verð ég rólegri og næ miklu frekar djúpum svefni þrátt fyrir truflanir af völdum umhverfishljóða, birtu og stoðkerfisverkja. Ég er alveg hissa hvað þetta hefur góð áhrif því ég sef eins og steinn en ég hef strítt við svefnleysi í áratugi og prófað margt t.d. seyði, hómópatalyf og melantónin með misjöfnum árangri.
Nei því miður. Anna Rósa er ekki með opna búð og sendir allar pantanir undantekningalaust með Íslandspósti/Basesendingu.
Nei því miður, það er eingöngu hægt að kaupa beint af Önnu Rósu í gegnum vefverslun. Anna Rósa framleiðir yfir 100 vörutegundir sem fást í vefverslun en aðeins 12 vörutegundir fást á sölustöðum.
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er, en í flestum tilvikum afgreiðir Anna Rósa pantanir samdægurs eða næsta virka dag. Vörum er dreift með Íslandspósti eða Basesendingu. Heimsending er afhent samdægurs (í 95% tilvika) eða næsta dag (í 5% tilvika) á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl 10 virka daga. Það tekur vanalega 1-3 virka daga að afhenda á pósthús/póstbox/pakkaport. Því miður er ekki í boði að sækja vörur til Önnu Rósu.
Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!
Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.
*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu
35% styrkleiki af vínanda, lindiblóm* (Tilia sp.), schisandra* (Schisandra chinensis), tulsi* (Ocimum sanctum), bacopa* (Bacopa monniera), sítrónumelissa* (Melissa officinalis), white peony* (Paeonia lactiflora). |
Andrés Hugo (verified owner) –
Hjálpar mér míkið við að ná djúpa svefn 🙂
Anonymous (verified owner) –
Anonymous (verified owner) –
🙂
Andrés Hugo de Maaker (verified owner) –
Róandi tinktúra sem hittir í mark
Helga (verified owner) –
Hjálpar mér að ná djúpsvefninum og með inntöku næ ég 7-8 tíma svefninum mínum