Triphala er einna þekktast fyrir að koma jafnvægi á meltinguna og þá sér í lagi sem hægðalosandi. Triphala er ekki nafn á einni jurt heldur heiti á ævafornri blöndu af þremur indverskum ávöxtum: Haritaki (Terminalia chebula), bibhitaki (Terminalia bellirica) og amalaki (Emblica officinalis) í jöfnum hlutföllum.

Ertu móðurlaus?

Triphala er ein elsta og þekktasta jurtablanda sem um getur á Indlandi en undanfarna áratugi hefur hún einnig náð miklum vinsældum á Vesturlöndum. Á Indlandi er triphala jafn vinsælt og þorskalýsið hérlendis en triphala þykir hafa ákafalega fjölbreytileg áhrif. Indverskt máltæki lýsir t.d. ágætlega trú manna á þessari blöndu: „ No mother? Don‘t worry so long as you have Triphala!“ sem útleggst á íslensku: „Ef þú ert móðurlaus, þarftu ekki að hafa áhyggjur svo lengi sem þú átt triphala!.“ Amalaki, einn af ávöxtunum í triphala inniheldur t.d. mun meira magn af C- vítamíni en appelsínur og er C- vítamínið þar að auki hitaþolið.

Triphala kemur jafnvægi á meltinguna

Ég hef í mörg ár notað triphala fyrir sjúklinga í ráðgjöfinni hjá mér með mjög góðum árangri en þetta er eina staðlaða jurtablandan sem ég vinn með, allt annað blanda ég sjálf.  Ég hef langmest notað triphala sem hægðalosandi samhliða öðrum jurtablöndum sem ég framleiði sjálf en það hefur reynst einstaklega vel gegn uppþembu og hægðatregðu. Triphala er einnig áhrifaríkt gegn meltingartruflunum, háum magasýrum, vindverkjum og ristilkrampa.

Í gegnum tíðina hef ég líka töluvert fengist við sáraristilbólgu þar sem aðaleinkennin eru oft mikill niðurgangur og þar hef ég margoft séð triphala hafa jákvæð áhrif. Ég get því með sanni sagt að ég hef séð triphala virka mjög vel til að koma jafnvægi á meltinguna en það virðist henta öllum því ég hef sárasjaldan séð nokkrar aukaverkanir því. Til að ná árangri skiptir skammtastærðin töluverðu máli en ég gef sjúklingum yfirleitt 4.000 mg á dag af lífrænum triphalatöflum.

  • Kemur jafnvægi á meltinguna
  • Hægðatregða og uppþemba
  • Meltingartruflanir og háar magasýrur
  • Ristilkrampi og vindverkir
  • Sáraristilbólga
  • Sale!

    Pakkatilboð – uppþemba og hægðatregða

    11.990 kr.
    Setja í körfu Skoða

Triphala hefur andoxandi og bólgueyðandi áhrif

Andoxunarefni, eða þráavarnarefni, eru efni sem geta hindrað eða hægt á oxun annarra efna. Við oxun myndast oft svokölluð sindurefni (free radicals) sem geta bæði valdið skaða í lifandi frumum eða skemmt matvæli. Andoxunarefni draga hins vegar úr skaðlegum áhrifum sindurefna ásamt því að vera bólgueyðandi. Triphala hefur bæði andoxandi og bólgueyðandi áhrif en löng hefð er fyrir því að nota það til að draga úr bólgu- og gigtarsjúkdómum. Eins er vel þekkt að triphala dragi úr hálsbólgu og tannholdsbólgu, bæði innvortis og sem munnskol.

Þessi blanda getur hjálpað þér að léttast

Triphala getur hjálpað til við að léttast en rannsókn á offitusjúklingum yfir þriggja mánaða tímabil sýndi að þeir sem fengu triphala léttust meira en þeir sem fengu lyfleysu. Rannsóknir hafa einnig sýnt að triphala hefur jákvæð áhrif á áunna sykursýki en þeir sem eru of þungir eru í meiri áhættu en aðrir með að fá sykursýki.
  • Triphala

    4.990 kr.
    Setja í körfu Skoða

Augnsjúkdómar og tannskemmdir

Löng hefð er fyrir því að nota triphala til að styrkja augun og draga úr augnsjúkdómum. Það hefur jákvæð áhrif á gláku, ský á auga og hvarmabólgu, bæði innvortis og sem augnskol. Eins hafa rannsóknir á einstaklingum með augnþreytu vegna tölvunotkunar sýnt að triphala augndropar draga úr augnþreytu. Triphala er einnig þekkt fyrir að draga úr tannskemmdum en klínískar rannsóknir hafa sýnt að munnskol úr triphala hefur bakteríudrepandi áhrif í munni og dregur úr tannsteini, tannholdsbólgu og skán.

Það styrkir hjarta og hægir á hrukkum

Triphala inniheldur hátt magn af andoxunarefnum en margt bendir til þess að andoxunarefni geti fyrirbyggt hjarta- og æðasjúkdóma, dregið úr hættu á blóðtappa og æðakölkun og hægt á hrukkumyndun. Rannsóknir hafa einnig sýnt að triphala getur lækkað blóðþrýsting og dregið úr háu kólesteróli.

Triphala getur verndað gegn krabbameini

Hátt hlutfall andoxandi efna í triphala eru talin hafa hamlandi áhrif á vöxt krabbameinsfrumna en þónokkrar rannsóknir á triphala í tilraunaglösum og á dýrum hafa leitt þetta í ljós. Þessar rannsóknir hafa meðal annars sýnt hamlandi áhrif triphala á eitlakrabbamein, ristil- og blöðruhálskrabbamein og maga- og briskrabbamein.

Skammtar

Ég mæli með 4.000 mg á dag af lífrænum triphalatöflum. Taktu tvær 1.000 mg töflur með morgunmat og tvær 1.000 mg töflur ca. 1 klst eftir kvöldmat.

Rannsóknir

Triphala hefur verið töluvert rannsakað en eins hafa allir þrír ávextirnir í triphala verið rannsakaðir í sitthvoru lagi.

  • Tvær klínískar rannsóknir hafa sýnt að munnskol úr triphala hefur bakteríudrepandi áhrif í munni og dregur úr tannsteini, tannholdsbólgu og skán.
  • Rannsókn á 62 offitusjúklingum yfir þriggja mánaða tímabil sýndi að þeir sem fengu triphala léttust meira en þeir sem fengu lyfleysu.
  • Rannsóknir á heilbrigðum einstaklingum leiddi í ljós að triphala styrkir ónæmiskerfið og gæti gagnast þeim sem eru með HIV/AIDS.
  • Rannsókn á 141 einstaklingum með augnþreytu vegna tölvunotkunar leiddi í ljós að triphala augndropar drógu úr augnþreytu og rannsókn á 150 sjúklingum með áunna sykursýki sýndi lækkun á blóðsykri með triphala.

Ofangreindar rannsóknir hafa verið klínískar þ.e. gerðar á mönnum en þar að auki hafa verið gerðar ótalmargar rannsóknir á áhrifum triphala í tilraunaglösum og á dýrum. Þessar rannsóknir hafa meðal annars leitt í ljós að triphala:

  • Styrkir ónæmiskerfið, verndar gegn geislum og hamlar vexti krabbameinsfrumna
  • Er bólgueyðandi, andoxandi, bakteríu-, veiru- og sveppadrepandi
  • Lækkar magasýrur, er hægðalosandi og hefur jákvæð áhrif á niðurgang
  • Lækkar blóðþrýsting, blóðsykur og kólesteról
  • Græðir sár og hefur jákvæð áhrif á gigtarsjúkdóma og þvagfærasýkingar
  • Hefur jákvæð áhrif á ský á auga og dregur úr stressi og tannskemmdum
  • Triphala

    4.990 kr.
    Setja í körfu Skoða
  • Sale!

    Pakkatilboð – uppþemba og hægðatregða

    11.990 kr.
    Setja í körfu Skoða

Bag A, Bhattacharyya SK, Pal NK. Antibacterial potential of hydroalcoholic extracts of triphala components against multidrug-resistant uropathogenic bacteria–a preliminary report. Indian J Exp Biol. 2013 Sep;51(9):709-14.

Baliga MS, Meera S, Mathai B, Rai MP, Pawar V, Palatty PL. Scientific validation of the ethnomedicinal properties of the Ayurvedic drug Triphala: a review. Chin J Integr Med. 2012 Dec;18(12):946-54.

Baliga MS. Triphala, Ayurvedic formulation for treating and preventing cancer: a review. J Altern Complement Med. 2010 Dec;16(12):1301-8.

Kamali SH, Khalaj AR, Hasani-Ranjbar S, Esfehani MM, Kamalinejad M, Soheil O, Kamali SA. Efficacy of ‘Itrifal Saghir’, a combination of three medicinal plants in the treatment of obesity; A randomized controlled trial. Daru. 2012 Sep 10;20(1):33.

Narayan A, Mendon C. Comparing the effect of different mouthrinses on de novo plaque formation. J Contemp Dent Pract. 2012 Jul 1;13(4):460-3.

Phetkate P, Kummalue T, U-Pratya Y, Kietinun S. Significant increase in cytotoxic T lymphocytes and natural killer cells by triphala: a clinical phase I study. Evid Based Complement Alternat Med. 2012.

Rajan SS, Antony S. Hypoglycemic effect of triphala on selected non insulin dependent Diabetes mellitus subjects. Anc Sci Life. 2008 Jan;27(3):45-9.

Srinagesh J, Krishnappa P, Somanna SN. Antibacterial efficacy of triphala against oral streptococci: an in vivo study. Indian J Dent Res. 2012 Sep-Oct;23(5)

Srinagesh J, Pushpanjali K. Assessment of antibacterial efficacy of triphala against mutans streptococci: a randomised control trial. Oral Health Prev Dent. 2011;9(4):387-93.

Suresh Kumar Gupta, V. Kalaiselvan, Sushma Srivastava, Shyam S. Agrawal, and Rohit Saxena. Evaluation of anticataract potential of Triphala in selenite-induced cataracts: In vivo and in vitro studies. J Ayurveda Integr Med. 2010 Oct-Dec; 1(4): 280–286

Um höfundinn

Anna Rósa er grasalæknir, framkvæmdastjóri, rithöfundur og alþjóðlegur fyrirlesari. Fyrst og fremst er hún þó með ástríðu fyrir öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur.

Sjá nánar
Anna Rósa grasalæknir