Pakkatilboð – breytingaskeiðið

Original price was: 15.570 kr..Current price is: 13.990 kr..

(8 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna maríustakkur og melissa, Lion’s Mane sveppaduft og lúxusprufu af sárasmyrsli.

  • Kemur jafnvægi á hormóna
  • Dregur úr hitakófum og svitaköstum á breytingaskeiði
  • Gegn þurrki, kláða og sveppasýkingum í leggöngum
  • Dregur úr skapsveiflum og pirringi
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Maríustakkur og melissa 200 ml, Lion’s Mane sveppaduft 60 g og sárasmyrsl 15 ml.

Lýsing

Anna Rósa mælir með að nota allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.

Magn: Maríustakkur og melissa 200 ml, Lion’s Mane sveppaduft 60 g og sárasmyrsl 15 ml.

Notkun – Maríustakkur og melissa: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Lion’s Mane sveppaduft: 1-2 tsk með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.

Notkun – Lúxusprufa af sárasmyrsli: Berið á slímhúð þrisvar til sex sinnum á dag eða oftar.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran Maríustakkur og melissa er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Lion’s Mane sveppaduftið er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Sárasmyrslið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Varúð: Maríustakkur og melissa: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.
Go to Top