Ashwagandha

6.990 kr.

(34 umsagnir frá notendum)
  • Við svefnleysi
  • Eykur líkur á að sofna og ná dýpri samfelldari svefni
  • Styrkir taugakerfið
  • Dregur úr kvíða og stressi
  • Örvar kynhvöt og dregur úr getuleysi – fyrir öll kyn
  • Örvar minni og verndar hjarta
  • Styrkir ónæmiskerfið og hamlar vexti krabbameinsfrumna
  • Bólgueyðandi og orkugefandi
  • Gegn vefjagigt, gigtarsjúkdómum og síþreytu

Anna Rósa mælir með að taka ashwagandha samhliða pakkatilboðinu – álag og svefnleysi og pakkatilboðinu – kvíði og þunglyndi.

 

200 ml

Lýsing

Anna Rósa mælir með samfelldri notkun í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Notkun: 1 tappi einu sinni til tvisvar á dag með morgunmat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun. Ashwagandha má nota samhliða öðrum tinktúrum frá Önnu Rósu.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúrur er framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þeirra. Geymist við stofuhita.

Varúð: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.
Go to Top