Anna Rósa mælir með að nota allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. tvo til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.
Magn: Mjólkurþistill og túrmerik 200 ml, þrusuþrenna 120 g og triphala töflur 1000 mg/120 stk.
Notkun – Mjólkurþistill og túrmerik: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Notkun – Þrusuþrenna sveppaduft:1-2 tsk með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.
Notkun – Triphala töflur: 2 töflur með morgunmat og 2 töflur með kvöldmat.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Tinktúran Mjólkurþistill og túrmerik er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Þrusuþrenna sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Triphala töflur eru með 4 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.
Varúð: Mjólkurþistill og túrmerik: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.
| Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar. |
Bergljót Sigríður (verified owner) –
Hef notað þessa vöru í rúma viku, og finn mun, á vonandi eftir að batna meira. Ég hef líka notað andlitskrem frá þér og þau eru mjög góð.
Laufey Árnadóttir (verified owner) –
Frábærar vörur