Sárasmyrsl

7.990 kr.

(73 umsagnir frá notendum)

Vantar þig eitthvað sem er gott á allt? Græðandi smyrsl gegn þurrki, bólgum og ertingu í húð. Sérstaklega gott á sár, þurrkubletti, útbrot, kláða, sprungur, exem, sóríasis, skordýrabit, bleiuútbrot, sárar geirvörtur, slit á meðgöngu, sveppasýkingar í leggöngum, gyllinæð og frunsur.

 

Sárasmyrslið er í pakkatilboðinu – græðandi, pakkatilboðinu – frunsur, pakkatilboðinu – exem og sóríasis, pakkatilboðinu – breytingaskeiðið, pakkatilboðinu – meðganga og barn og pakkatilboðinu – frjókornaofnæmi.

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

50 ml

Lýsing

Notkun: Berðu ríkulega á viðkomandi svæði þrisvar til sex sinnum á dag eða oftar. Má nota á allan líkamann, þ.m.t. viðkvæma slímhúð, andlit, hársvörð og í kringum augu.

Áhrif:

  • Bólgueyðandi og græðandi
  • Dregur úr þurrki, kláða og bólgum
  • Græðir og róar exem og sóríasis
  • Sérstaklega gott á sár, útbrot, kláða, skordýrabit, sprungur og gyllinæð
  • Vinsælt á bleiuútbrot, kuldaexem, sárar geirvörtur, slit á meðgöngu og sveppasýkingar í leggöngum
  • Mikið notað á varaþurrk og frunsur
  • Innheldur eingöngu E-vítamín sem rotvörn

Húðgerð: Gegn þurrki, bólgum og ertingu í húð.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Ekki prófað á dýrum og án glúteins. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Sárasmyrslið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Smyrslið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Mig langaði að þakka þér fyrir æðislegar vörur. Ég á eina 6 vikna dömu og hef ég verið að nota sárasmyrslið frá þér á bossann á henni. Þetta er hreint undrakrem. Hún fékk nokkur útbrot á bossann eftir blautþurrkur og ég ákvað að prufa sárasmyrslið. Strax klukkutíma síðar voru útbrotin að hverfa. Ég nota þetta á brenndan bossann líka og græði það á örskotsstundu. Ég setti smyrslið einnig á klórfar í andlitinu á bæði dömunni og á 4 ára strákinn minn og það var farið næsta dag. Takk kærlega fyrir þessa undravöru!

Berglind Þóra Ólafsdóttir

Ég var með slæmt sár í fimm mánuði eftir skurðaðgerð og búin að reyna allskonar krem og smyrsl. Sárasmyrslið hennar Önnu Rósu gerði kraftaverk og sárið greri á einni viku. Svo er það líka gott á sprungur, útbrot og þurrkbletti.

Lena Lenharðsdóttir

Ég kynntist fyrst vörunum þínum þegar ég fékk húðsýkingu í kjölfar bráðakeisara en því fylgdi mikill kláði sem krem unnu lítið á. Kláðinn lagaðist hinsvegar við að nota sárasmyrslið þitt. Sonur minn er fæddur með skarð í vör og ég ákvað að nota græðikremið og sárasmyrslið til skiptis eftir fyrstu aðgerðirnar sem hann fór í. Sárin voru mjög fljót að gróa og lítill pirringur á aðgerðasvæðinu. Í kjölfar fleiri aðgerða þegar hann varð eldri kom ekkert annað til greina en að nota sárasmyrslið þitt með þvílíkt góðum árangri, sárin greru mjög vel og ör voru fljót að dragast saman og verða FLOTT. Fjölskyldan notar líka smyrslið fyrir fætur, á sár og margt annað og frá okkur færðu sko 10 stjörnur fyrir frábæra vöru.

Ragnheiður Sölvadóttir

Sárasmyrslið hennar Önnu Rósu grasalæknis er algjörlega frábært. Það er mjúkt, smitar ekki, gengur vel inn í húðina og er mjög græðandi. Svo lyktar það líka vel.

Hallfríður M. Pálsdóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Ólífuolía (Olea europea), býflugnavax (Cera alba), sheasmjör* (Butyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), mjaðjurt* (Filipendula ulmaria), haugarfi* (Stellaria media), vallhumall* (Achillea millefolium), birki* (Betula pubescens), GMO-frítt E vítamín (tocopherol), lavender*(Lavendula officinalis).

Endurvinnsla

  • 100% endurvinnanleg glerkrukka
  • 100% endurvinnanlegt lok úr polypropylene/polyethylene plasti
  • 100% endurvinnanlegar umbúðir – FSC vottaður pappír úr sjálfbærum skógum
  • Blek er unnið úr náttúrulegu endurnýtanlegu hráefni

73 umsagnir um Sárasmyrsl

  1. Ásdís G. Þorsteinsdottir

    Nauðsynlegt að eiga sarasmyrslið hennar Önnu í sjúkra kassanum. Hef notað það til að græða og mýkja sár. Virkaði vel á kulda exem hjá barnabarni. Svo er það er það varaþurrkurinn. Bara færð ekki betra smyrsl.

  2. Þórdís Hrefnudóttir Bjartmarsdóttir

    Dótturdóttir mín bókstaflega elskar sárasmyrslið frá Önnu Rósu. Enda minnir hún mig reglulega á að kaupa það fyrir sig og það geri ég svo sannarlega með glöðu geði. Besta kremið við allskyns sárum. Græðir fljótt og vel.

  3. Ingibjörg Hlínardóttir

    Fyrir nokkrum árum var èg í Ítalíu ađ sumri til. Ég reyndi allt sem ég gat ađ fæla mýflugur frá mér en var þrátt fyrir þađ mjög vinsæl hjá litlu blóđsugunum. Èg keypti ýmsar tegundir af kláđastillandi, sem mátt nota x oft á dag. Þessir áburđir stilltu oft kláđan stutt og var èg ađ verđa vitlaus af kláđa. Sem betur fer var èg međ smá sárasmyrsl međ mér. Þvílíkt æđi. Þetta tók kláđan vel og èg gat notađ þetta eins oft og vildi. Eini gallin var ađ ég var bara međ smá međ mèr. Sárasmyrsl er alltaf til á mínu heimili.

  4. Ragnheiður Sölvadóttir

    Sæl yndislega Anna Rósa, ég má til með að hrósa sára „töfra“ smyrslinu þínu aftur og aftur og AFTUR. Núna sl. miðvikudag datt ég frekar illa á hnéið og fèkk ljótt sár. Þegar ég kom heim þvoði ég sárið og bar sárasmyrslið á og er svo búin að endurtaka það 2-3 á dag og núna er sárið nánast gróið! Takk fyrir pent 😁😁😁

  5. Ragnheiður Sölvadóttir

    Núna í febrúar var guttinn minn í stórri aðgerð (gleymdi að taka fyrir og eftir mynd) þar sem tekið var bein úr mjöðm. Um leið og umbúðir og saumar voru tekin þá byrjaði ég að bera græðikrem og sárasmyrsl á sárin og allur ertingur og roði hvarf ❤❤❤

  6. Lilja

    Sárasmyrslið er mikið notað á okkar heimili. gott á þurra hæla, olnboga, sár og marbletti notum þetta óspart hér.

  7. Guðjón einarsson

    Góðan daginn!Sáramyrslin hef ég notað á sprungur við neglur fingurgóma með góðum árangri,fæ alltaf sprungur þegar kólnar t.d.slær á verki og græðir á ótrúlega stuttum tíma,einnig höfum við notað við vandræðum við inngrónar táneglurþar hefur þetta krem slegið læknunum við,þetta eru undrasmyrsl 🙂 <3 <3

  8. Hulda Guðmundsdóttir

    Á mínu heimili verður alltaf að vera til sárasmyrsl. Getir kraftaverk á bleijubossann á þeim yngsta, sefar exemkláða hjá miðjunni og bjargar þurrkublettum hjá unglingnum.

  9. Anonymous (verified owner)

    Einasta sem ég set á andlitið og hef gert árum saman (þ.e. síðan sárasmyrslið kom á markað)

  10. Sigríður Ingibjörg Jensdóttir (verified owner)

  11. Andrés Hugo

    Til að linna stoðkerfisverki fer ég í sund uppá hvern einasta dag allt árið um kring. Þá þarf að sápuþvo sig með þar til gerðum sápur sem líka þurrka húðina. Ég vinn í grænmetiseldhúsi og er þ.a. l. mikið með hendurnar í vatni og þarf að vinna mikið í einnota hönskum vegna hreinlætiskrafna og með puttana oft í ávaxta/grænmetissafa. Ég var búinn að vera með þrálátar rauðar bólgur á putta vinstri handar og fékk sár á fremstu kjúkunum sem ætluðu aldrei að gróa og versnuðu míkið í kuldanum í vetur og ollu töluverðan sársauka. Ég bar Sárasmyrsl á sárin og svaf með bómullarhönskum og viti menn, sárin gréru og eitt sár grær enn en er þó míklu skárri. Takk Anna Rósa þú ert með frábærar vörur.

  12. Sigríður Ingibjörg Jensdóttir (verified owner)

  13. Anonymous (verified owner)

    Ég er nýbyrjuð að nota þetta krem á fjölfatlaða son minn sem glímir við allskonar húðvandamál sem afleiðingu af fötlun sinni. Þetta krem hefur hjálpað okkur mjög mikið í þeirri glímu og við erum farin að nota það til að fyrirbyggja t.d. sáramyndanir, exem o.fl.

  14. Pamela Mitchell (verified owner)

    Love your products

  15. Marín Hrund (verified owner)

  16. Anna G.

    Alltaf til á mínu heimili, frábært smyrsl.

  17. Lára Stefánsdóttir (verified owner)

    Frábært smyrsl virkar vel á sár grær fyrr. Drepur niður frunsu á þremur til fjórum dögum. Þetta er frábært smyrsl. Á eftir að prófa þetta á ýmislegt fleira.

  18. Margret Skúladóttir (verified owner)

    Æði

  19. Matthildur Birgisdóttir (verified owner)

    Sárasmyrslið virkar glimrandi vel á moskítóbit, kláðinn hvarf strax, þurfti ekki að endurtaka nema 2-3 sinnum.

  20. Sigríður Ingibjörg Jensdóttir (verified owner)

  21. Kristín Guðnadóttir (verified owner)

    Mjög gott, mæli með þessu smyrsli

  22. Guðlaug Jónsdóttir (verified owner)

    😊

  23. Anonymous (verified owner)

    Yndislegt vara fyrir alla fjölskylduna!

  24. Jónína (verified owner)

    Mýkjandi krem, sem er gott að bera á þurrkubletti

  25. Elín Bergsdóttir (verified owner)

    Frábært krem, virkar mjög vel á exemið mitt sem er frekar erfitt og ekki mörg krem sem vinna á þvi. Einnig er sárakremið mjög gott á bleyjuútbrot 🙂

  26. Anonymous (verified owner)

    Á þetta alltaf til á þurrkubletti og líka sára húð. Frábært á bleiusvæði.

  27. Margrét Haraldsdottir (verified owner)

    Mjög græðandi krem

  28. Hafdís (verified owner)

    Sárasmirslið er alveg frábært, nota það á ansi margt, bæði mig og krakkana 👌 Töfrakrem segir dóttir mín😊

  29. Kristín Þóra (verified owner)

    Frábært alhliða krem. Nýttist meðal annars vel á flökkuvörtur hjá dóttur minni.

  30. Aslaug Guðmundsdottir (verified owner)

    Mjög gott að nota þetta krem með græði kreminu. Gefur góðan árangur vegna þurrka á handabaki.

  31. Elinborg Andrésdóttir (verified owner)

    Takk fyrir þetta frábæra græðandi krem, bjargaði mér algjörlega. Ég mæli fullkomlega með þessu Sárasmyrsli. Bestu kveðjur Elínborg Hanna.

  32. María Rós

    Virkar ótrúlega vel á þessi djössss bit, kláðinn er óbærilegur en sárasmyrslið hefur reddað mér bæði síðasta sumar og núna 👏 hef fengið svona blöðrur og bólgur sem hefur hjaðnað á 3 dögum 👍 og grær á mettíma

  33. Fjóla (verified owner)

    Mjög græðandi á sár, gott á varirnar og þurra bletti.

  34. Lilja

    Elska þetta krem á sprungur í húð. þurra húð. á smá sár eða skeinur

  35. Anna Helga Kristinsdóttir (verified owner)

    Líkar mjög vel við sárasmyrslið og hef notað það lengi.

  36. Gerður Árnadóttir (verified owner)

    Mjög gott á flugnabit

  37. Alla Guðnadóttir (verified owner)

    mjög ánægð með þetta krem.

  38. Sólveig Erla Hinriksdóttir (verified owner)

    Frábært á frunsur

  39. Hekla Eir (verified owner)

    Sárasmyrslið hefur bjargað mér í brjóstagjöfinni. Var með virkilega sárar gervörtur þar sem barnið er með mikla sogþörf, var búin að prufa þessi klassísku brjóstakrem og þau gerðu sitt enn varð aldrei alveg góð. Nema núna með þessu smyrsli. Mæli 100% með!

  40. Valgerður Inga (verified owner)

    Snilldarkrem sem ætti að vera til á hverju heimili.

  41. Hólmfríður Gestsdóttir (verified owner)

    Mjög gott krem á sára og auma húð.

  42. vilmundína Lind kristjánsdóttir (verified owner)

    Sárasmyrslið reynist mér mjög vel er mjög sátt

  43. Karen Ósk (verified owner)

    Æðislegt krem sem virkar á allt. Ég er með svakalegt meðgöngu-hormónaexem í andlitinu og þetta krem er að bjarga mér. Hef notað þetta á frunsu, sár, sára geirvörtu, þurrkubletti, kuldaexem á kinnum á ungabarni (nota þetta ekki sem kuldakrem heldur þegar hann er sem verstur, eldrauður og þurr) og sáran nebba eftir mikið kvef hjá ungabarni, maðurinn minn notaði þetta á nýtt tattoo sem er að gróa. Maður þarf svo lítið krem í einu að þetta mun endast ansi lengi og ég elska það. Must have á hvert heimili að mínu mati – ⭐⭐⭐⭐⭐

  44. Anonymous (verified owner)

    Dótturdæturnar eru afar áhugasamar að smyrja þurrkbletti sem valda þeim eymslum og kláða, komin er vika og smyrslið er strax farið að hafa góð áhrif, minni bólgur eru á höndum og húðin farin að jafna sig. Mjög gott smyrsl á exem og húðþurrk.

  45. Karólína Jónsdóttir (verified owner)

    Mörg krem og smyrsl virum við mæðgur búnar að prófa á þurkinn á höndunum okkar. Sem var farinn að þróast útí eithversskonar exem sem klæjaði í. Loksins loksins datt ég inná þessa frábæru náttúrulegu vöru hjá henni Önnu Rósa. Sárasmyrslið slær á kláðann og virkar vel á þurkubletti og sprungna húð. Ég mæli með.

  46. Valgerður Björnsdóttir (verified owner)

    Líst mjög vel á en búin að nota í stuttan tíma

  47. Aldís

    Æðislegt krem. Virkar mjög vel á bleiuútbrot/pissubruna.

  48. Halldóra Ásmundsdóttir

    Hef notað sárasmyrslið við lúsmýi og á sár ,, það virkaði vel . Mæli með því . Svo hef ég notað græði kremið líka og það er mjög gott á þurra og sprungna húð .

  49. Elsa Jóna Björnsdóttir

    Geggjað krem,alltaf til á mínu heimili.Er með 3 börn og sárasmyrsl er mikið notað og með góðu árangri

  50. Valgerður (verified owner)

    Algjör skylduvinnu á okkar heimili og hefur svo sannarlega gert kraftaverk á þurri húð og sárum sem ekki hafa viljað gróa.

  51. Ágústa Tryggvadóttir

    Skyldueign sem nýtist öllum fjölskyldumeðlimum hvort sem er um að ræða sár, bleyjuútbrot og þurra húð.

  52. Þorbjörg Völundardóttir

    Ég hef einnig notað sárasmyrslið sem er mjög gott.

  53. Anonymous (verified owner)

    Það er nauðsynlegt að eiga sárasmyrsl.

  54. Berglind Alda Hildardóttir

    Ég er með mjög þurra slímhúð í nefi og hef fengið bóðnasi vegna þessa. Eftir að ég fór að bera sárasmyrslið með eyrnapinna í nefið einu sinni á dag er ég hætt að fá blóðnasir. Nota líka sárasmyrslið ásamt græðikreminu saman á þurrar hendurnar mínar eftir kulda, tíðra handþvotta og ofnæmi fyrir einnota hönskum og þær gróa á stuttum tíma sérstaklega þegar ég fer í bómullarhanska yfir til að leyfa kremunum að smjúga inn í húðina. Takk fyrir frábærar vörur Anna Rósa. <3

  55. Ragnhildur Ólafsdóttir (verified owner)

    Þetta krem er algjört æði, bjargaði mér algerlega við lúsmý bitum.

  56. Anonymous (verified owner)

    Love it:)

  57. Susanne Neumann (verified owner)

    Virkar vel, þarf ekki mikið, fer vel í húðina

  58. Bryndís

    Mig langar að segja frá því að sárasmyrslið er alveg að redda mér með sár sem ég fékk í andlitið eftir lúsmýbit og sár sem komu eftir langvarandi notkun á andlistsmaska (ég fékk svokallaðar maskabólur sem breyttust svo í sár). Ég var búin að vera með baktetíudrepandi krem og sterakrem en ekkert gekk. Þá mundu ég eftir sárasmyrslinu og loksins er ég farin að sjá árangur 😊 maðurinn minn er líka farinn að nota þetta á exemblett í hársverði sem ekkert hefur bitið á en nú er þetta að lagast með sárasmyrslinu.

  59. Anna Margrét Gunnarsdóttir (verified owner)

    Frábært krem

  60. Brynja (verified owner)

    Þetta krem er mjög vinsælt hjá dóttur minni en hún ber kremið á dætiur sínar og heldur þar með niðri exemi sem hrjáir þær.

  61. Margret Skúladóttir (verified owner)

    Dásamleg vara þetta er ekki fyrsta varan sem ég fæ hjá þér alveg dásamleg takk kærlega ♥️♥️

  62. Helga Sigurbjörg Árnadóttir (verified owner)

    Sárasmyrslið hefur algjörlega bjargað lífi mínu. Ég fékk sár í nára í ágúst 2020, sem í var mikill kláði, útbrot og roði og það blæddi úr. Ég gekk á milli lækna sem sköffuðu mér allskonar sterakrem/sveppakrem og sýklalyf/sveppalyf, sem ekkert virkuðu. Ég var einnig búin að prufa alls konar krem úr apótekinu sem virkuðu í smá tíma en svo varð allt aftur eins. Svo var það ein samstarfskona mín sem benti mér á að prufa sárasmyrslið frá Önnu Rósu, þetta var í október/nóvember 2021 og eftir nokkra daga notkun, þá fann ég mjög mikinn mun. Það sem ég fann strax var að kláðinn hætti og mér leið betur í náranum. Núna er þetta horfið og ef ég finn fyrir einhverjum ertingi þá set ég sárasmyrslið á og allt lagast. Þetta er algjör undrakrem og ég mæli 1000% með því. Sonur minn hefur einnig verið að nota það á sár og excem. Húðsjúkdómalæknirinn minn var búinn að segja að ég þyrfti sennilega bara að læra að lifa með því að vera svona, en sem betur fer, þá þarf ég þess ekki. Ástarþakkir fyrir mig 🙂 Kv. Helga

  63. Hólmfríður Sigmarsdóttir (verified owner)

    svolítið feitt, en þarf örugglega að vera það, til að nýtast í það sem því er ætlað. Vinnur vel á sárum og mýkir húðina.

  64. Áslaug Sólveig Guðmundsdottir (verified owner)

    Virkar fljótt

  65. Berglind Alda Hildardóttir (verified owner)

    Ég nota Sárasmyrsl mjög mikið bæði á þurra og sára húð, exem, sem varasalva og til að koma í veg fyrir blóðnasi með því að bera það á slímhúð í nefinu með eyrnapinna.

  66. Hjördis (verified owner)

    mjög gott

  67. Hulda (verified owner)

    Nota þetta krem mikið á fæturnar <3

  68. SoFfía Sigurlaug Guðmundsdóttir (verified owner)

    Mjög ánægð með sárakremið

  69. Fjóla (verified owner)

    Frábærar vörur og frábær þjónusta.

  70. Olga Gísaldóttir (verified owner)

    Mjög gott krem á sár og útbrot.

  71. Anna Guðmundsdóttir (verified owner)

    Þetta þarf að vera til á hverju heimili

  72. Unnur Iris (verified owner)

    X

  73. Þuríður Baldursdóttir (verified owner)

    Mjög gott krem sem gagnast við svo mörgu.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top