Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.
Magn: Túrmerik og engifer 200 ml, vöðva- og gigtarolía 100 ml og gigtarte 40 g.
Notkun – Túrmerik og engifer: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Notkun – Vöðva- og gigtarolía: Nuddaðu olíunni á vöðva og liði þrisvar til fjórum sinnum á dag. Notaðu eingöngu útvortis og ekki nálægt augum, slímhúð, opnum sárum eða viðkvæmri húð.
Notkun – Bólgueyðandi te: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Tinktúran Túrmerik og engifer er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Vöðva- og gigtarolían er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Bólgueyðandi te er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Allar vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.
Varúð: Túrmerik og engifer: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.
Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar. |
Vilborg Karlsdóttir (verified owner) –
Kristíana (verified owner) –
Vöðva- og gigtarolían er alveg ótrúlega góð. Ég er með festumein í mjöðm sem hefur angrað mig árum saman og ég fann verulegan mun eftir nokkurra daga notkun á olíunni.
Brynja Guðnadottir (verified owner) –
Kristín Gunnþórsdóttir (verified owner) –
Guðlaug Jónsdóttir (verified owner) –
Æðisleg vara
Anonymous (verified owner) –
Bozena Kowalska (verified owner) –
Ragnheiður Lárusdóttir (verified owner) –
Ég er ánægð með þessar vörur , keypti þær vegna slitgigtar og ætla vera dugleg að nota, er nýbyrjuð.
Jónína Jónsdóttir (verified owner) –
Góð virkni
Guðríður Andrésdóttir (verified owner) –
Er búin að prófa þessar vörur, hafði ekki of mikla trú á þeim en þetta hefur gert kraftaverk, er að fara að panta aftur.
Bergþóra Jósepsdóttir (verified owner) –
Allt stóðst kom fljótt ,virkar vel
Sigrún (verified owner) –
Elska vörurnar hennar Önnu Rósu ég er gjörn á að fá höfuðverk og verð oft mjög þrútin á höndum og finnst mér allar þessar vörur hjálpa mér. Einnig lét ég son minn taka túrmerikið þegar hann fann fyrir hálsbólgu og hann segir þetta undrameðal, tók þetta í 2 daga og varð góður. Hann er ofnæmispési.
Snjólaug Grétarsdóttir (verified owner) –
Ég er mjög ánægð með kombóið og fann mun á hvað líkaminn var minna uppþaninn að kvöldi, ég er með fæðuóþol og þó ég passi mig er ég alltaf áberandi uppblásin á kvöldin.
Sigrún (verified owner) –
Frábærar vörur og virkar mjög vel fyrri bólgur og gitgt.
Fanney Ólöf (verified owner) –
Þetta eru góðar vörur
Soffía Guðmundsdóttir (verified owner) –
Mjög ánægð með vörurnar frá þér.
María Kristín Þorleifsdóttir (verified owner) –
Allur pakkinn virkaði mjög vel og verkirnir minnkuðu mikið eða næstu þvi hurfu takk fyror mig
Guðrún Agnarsdóttir (verified owner) –
Frábærar vörur 👍fann nánast strax mikinn mun
Guðrún Ágústa Sigurðardóttir (verified owner) –
*Olían linar gigtarverkina og minnkar bólgu, get ekki dæmt um hinar teg.
Helga Björk Harðardóttir (verified owner) –
Ég þarf lengri tíma til að finna virknina betur, bara vika síðan ég byrjaði að nota þetta.
Guðbjörg Gísladóttir (verified owner) –
Jurte-ið fór ekki nógu vel í magann en fín virkni á öllu
Guðbrandur Brynjúlfsson (verified owner) –
Nú hef ég lokið úr glasinu með túrmerikinu o. fl., en á dálítið eftir af gigtarteinu og olíunni. Finn nákvæmlega engin batamerki. Bakvöðvarnir ennþá jafn aumir og stífir og hryggurinn verður skakkur ( S laga) eftir stutta áreynslu. Er í sjúkraþjálfun og geri teygju- og styrktaræfingar daglega. Hef samt áhuga á að fá annað glas af túrmerikinu, því kannske er ekki fullreynt. En það er of dýrt að senda eitt glas. Kem í bæinn eftir helgi og kíki þá í verzlunina til þín, ef ég má, og fæ eitt glas.
Beztu kveðjur.
Guðbrandur
Anna Rósa grasalæknir (store manager) –
Sæll Guðbrandur,
Það er leitt að heyra að þú finnur engan mun. Það er algengt að það þurfi lengri tíma en tvær vikur til að ná árangri,sérstaklega ef vandamálið hefur verið viðvarandi lengi. Ég mæli með inntöku af þessari tinktúru ásamt samhliða notkun af tei og olíu í a.m.k. 1-3 mánuði til að sjá hvort að árangur næst. Að því sögðu get ég að sjálfsögðu ekki lofað árangri. Ég er ekki með opna verslun og tek ekki á móti fólki og því er eingöngu hægt að kaupa beint af mér í gegnum vefverslun. Tinktúran Túrmerik og engfer fæst líka á sumum sölustöðum en pakkinn sjálfur fæst eingöngu í vefverslun, sjá alla sölustaði hér: https://annarosa.is/_solustadir/ Bestu kveðjur, Anna Rósa
Guðrún Margrét Hannesdóttir (verified owner) –
Flottar pakkningar og sætt kortið sem fylgdi með 🙂
Lárusdóttir D. (verified owner) –
virkar vel
Valgerður Björnsdóttir (verified owner) –
Líst vel á vörurnar en búin að nota í stuttan tíma
Gunnlaug Ragnheiður Sölvadóttir (verified owner) –
Mæli mjög með þessari 3. Èg er t.d frekar klígju gjörn en þetta get èg. Tek teið og turmerik/engifer drykkinn ca 3 á dag og fyrir mig er það alveg nóg, olían er bara á náttborðinu. Finn að þetta er að gera mér gott. Takk fyrir mig
Ingibjörg Elísdóttir (verified owner) –
OLIAN ER MJÖG GÓÐ
Gunnar Ringsted (verified owner) –
gæðavörur alltsaman
GLADYS RAMOS (verified owner) –
Þetta vart hjálpa mér mikið sérstaklega olía ,mixtura vart aðeins sterk annast allt saman vart mjög góð takk fyrir
Birna þorleifsdottir (verified owner) –
Mér líður betur þessum vörum þínum og á eftir að kaupa meir afvounum þínum fyrir minga gigtarskomm
Anonymous (verified owner) –
Það kemur mér a óvart hversu góð vöðvaolían er, hve hressandi engifer-turmerik skotið er og hversu „lítið vont“ á bragðið te-ið er 🙂 (ég er alls ekki te-manneskja). Vörurnar virka vel a mig og ég fann fljótt að öxlin, sem var slæm vegna bólgu, tók stór skref framávið. Mæli með þessari þrennu.
Anna T. (verified owner) –
Gigtarpakkinn hefur hjálpað mér í gegnum mikla verki sem fylgja kulda og umhleypingum.
Anna Día (verified owner) –
Túrmerik og engifer mixtúran byrjaði að slá á slæma stoðkerfisverki eftir 2 vikna notkun þrátt fyrir að ég tæki bara einn skammt á dag. Bragðið er ekkert sérstakt en þess virði að láta sig hafa það. Teið er mjög bragðgott og verkaði vatnslosandi á mig. Olían gefur góða slökun og hefur daufa og þægilega lykt.
Anna Rut Haubitz –
Almennt bara ánægð
Vilborg (verified owner) –
Mjög góð vara olian gagnast mér bæði við bólgum og fótaóeirð .
Dagný Pétursdóttir (verified owner) –
mjög gott
Hlíf Sigurjónsdóttir (verified owner) –
Móðir mín notar olíuna og dásamar hana, teið er ljúft og ég trúi á áhrif turmeriks og engifers og svona vandaðar íslenskar vörur eru gulls ígildi, sem hjálpa manni að vera í góðu formi.
guðrún emlía karlsdóttir (verified owner) –
virkar mjög vel .en ég er á íslandi og það væri gott að fá þetta á íslensku ef ég á að getað skilið ykkur.bestu kveðjur Guðrún
Anna Rósa grasalæknir (store manager) –
Það er allt á íslensku hjá mér, sjá þennan pakka á íslensku hér: https://annarosa.is/product/pakkatilbod-bolgur-verkir/
Rannveig T. (verified owner) –
Mér hafa líkað þessar vörur vel, sérstaklega finnst mér gigtarolían góð.
Rannveig T. (verified owner) –
Hef notað þessar jurtir í nokkra mánuði vegna liðverkja og bólgu í líkamanum. Er sérstaklega hrifin af olíunni, endist lengi og virkar vel. Tinktúran er hjálpar til við bólgur og ég drekk teið daglega og líkar vel. Er þakklát fyrir þessar góðu jurtir.
Rannveig T. (verified owner) –
Er með gigt í höndum og bólgur í líkamanum. Þessi pakki hefur gagnast mjög vel. Hef notað hann að staðaldri undanfarna mánuði með góðum árangri.
Ásdís H. (verified owner) –
Þar sem ekki er það langt síðan ég byrjaði á þessari meðferð er ekki alveg komin viðhlýtandi viðmið. En engu síður finnst mér meltingin svo og liðverkir í fingrum farin að gefa eftir. Hlakka til að halda þessari meðferð.
Merete (verified owner) –
Stelpan sem naut þessi pakki segja að það hefur ekki áhríf
Sæunn Sigurlaugsdóttir (verified owner) –
Gigtarteið frá Önnu Rósu reynist mér mjög vel
Sigurjón Pálsson (verified owner) –
Hæts ánægður en nota mest vöðva og gigtarolíuna þar sem ég er mjög ílla haldin af slitgigt og stöðugt verkjaður, þannig að ég get ekki heislað fólki með handabandi vergna ótta við verulega aukningu verkja osfr. En ég ber olíuna á fingur og olboga 3 á dag og það hafði þau áhrif að verkir dofnuðu og mér fór að líða betur. Ég mæli klárlega með olíunni 100%
Joanna Atladottir (verified owner) –
Olían virkar æðislega,er að taka hitt en svolítið vont á bragðið 😉
Margrét (verified owner) –
Nota mjög mikið við liðaverkjum.
Heiðbjört (verified owner) –
Ég ákvað að prufa þennan pakka þar sem mér gekk illa að losna við bólgur úr líkamanum. Ég hef verið að taka mixtúruna tvisvar á dag og fengið mér te einu sinni til tvisvar á dag í 3 vikur og ég finn mun á mér til hins betra. Olíuna hef ég bara notað þegar ég finn fyrir verkjum og hefur hún virkað ágætlega á þá.
Anonymous (verified owner) –
Er að nota þetta í fyrsta sinn og finnst það hjálpa mér.