Anna Rósa mælir með að nota allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.
Magn: Adam og Eva 200 ml, burnirót 200 ml og ástarolía 100 ml.
Notkun – Adam og Eva: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Notkun – Burnirót: 1 tappi með morgunmat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Notkun – Ástarolía: Þetta er nuddolía sem er notuð eftir þörfum til að bera á líkamann en er ekki ætluð sem sleipiefni.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Tinktúrurnar Adam og Eva og Burnirót eru með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúrurnar er framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þeirra. Geymist við stofuhita. Ástarolían er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Olían er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita.
Varúð: Adam og Eva og Burnirót: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.
Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar. |
Anonymous (verified owner) –
Manninum mínum fannst mjög erfitt að drekka þetta vegna bragðsins. En virkar vel. Takk
Helga (verified owner) –
Ástarolían er dásamleg
Lára Hildur Þ. (verified owner) –
Mjög fint
Sigþrúður (verified owner) –
Góðar vörur sem henta mér vel, topp þjónusta.