Munnskol

5.990 kr.

(8 umsagnir frá notendum)
  • Bólgueyðandi, bakteríu- og sveppadrepandi
  • Við munnangri og tannholdsbólgu
  • Dregur úr andremmu og sveppasýkingu í munni
  • Græðir hverskyns særindi í munni

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

200 ml

Lýsing

Notkun: Settu 1 tappa (8 ml) af munnskoli í glas og bættu við tveimur töppum af vatni. Skolaðu munn vel í a.m.k. 1-2 mínútur og kyngdu. Skolaðu tvisvar til þrisvar á dag. Hristist fyrir notkun.

.Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.
Go to Top