Maríustakkur og melissa

5.990 kr.

(1 umsögn frá notanda)
  • Kemur jafnvægi á hormóna
  • Dregur úr fyrirtíðaspennu og bólum tengdum blæðingum
  • Við hitakófum og svitaköstum á breytingaskeiðinu
  • Dregur úr skapsveiflum og pirringi
  • Kemur jafnvægi á óreglulegar blæðingar

Þessi tinktúra er í pakkatilboðinu – breytingaskeiðið.

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

200 ml

SKU: 2060 Categories: , ,

Lýsing

Anna Rósa mælir með samfelldri notkun í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Notkun: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita.

Varúð: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Ég er 56 ára og í góðu formi en fór að finna fyrir hitakófum. Þá ákvað ég að taka tinktúruna Maríustakk og melissu því ég vildi ekki hormónalyf. Og viti menn, eftir 10 daga fann ég mikinn mun á mér til hins betra. Nú er ég búin að taka tinktúruna í tvo mánuði og hitakófin eru bara í minningunni. Ég get því heilshugar mælt með þessari vöru frá Önnu Rósu við einkennum breytingaskeiðsins.

Kristín Halla Hilmarsdóttir
Go to Top