Blöðrubólgute

2.490 kr.

(6 umsagnir frá notendum)
  • Bakteríudrepandi og bólgueyðandi
  • Gegn blöðrubólgu og þvagfærasýkingum

Þessi teblanda er í pakkatilboðinu – blöðrubólga.

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

40 g

SKU: 2224 Category:

Lýsing

Anna Rósa mælir með samfelldri notkun í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Notkun: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Blöðrubólgute er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 3 mánaða endingu eftir opnun. Teið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 20.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 20.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Ísl. vallhumall* (Achillea millefolium), ísl. brenninetla* (Urtica dioica), ísl. mjaðjurt* (Filipendula ulmaria), ísl. sortulyng (Arctostaphylos uva-ursi).

6 umsagnir um Blöðrubólgute

  1. Dísa (verified owner)

    Hef verið viðkvæm fyrir þvagfærasýkingum og hef prófað allskonar, trönuberjatöflur og náttúrulyf sem fæst í apótekjum sem hefur virkað eitthvað en þetta te er algjör snilld og hreinsar burtu bakteríurnar fljótt með auknu þvagláti sem þetta te gerir að verkum. Elska þetta og á þetta alltaf heima, takk!

  2. Þuríður B. (verified owner)

    Bragðgott og styður vel við ásamt tinktúru til að halda þvagfærasýkingu í skefjum.

  3. Þuríður B. (verified owner)

    Prýðis tejurtir, bragðgóðar og ómissandi til að halda þvagfærasýkingum í skefjum. Kannski frekar daufar, þarf að passa að spara ekki magnið. Hef notað í tæpt hálft ár og þori alls ekki að hætta!

  4. Ásdís Kjartansdóttir (verified owner)

    Þetta er gott að eiga ávallt í hillu.

  5. Þuríður Baldursdóttir (verified owner)

    Hef langa reynslu af þessu tei og finnst mikið öryggi í því að eiga það að grípa til, en best er að drekka það að staðaldri.

  6. Sigríður Ingibjörg (verified owner)

    Mjög gott te. Trúi að það hafi áhrif víða fyrir líkamann.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top