Pakkatilboð – bólur

10.784 kr.

(122 umsagnir frá notendum)

Er bólan sem virkaði ósköp saklaus í gær orðin að skrímsli? Hefurðu prófað (næstum) allt til að losna við hana? Pakkinn inniheldur bóluhreinsi og dagkrem (sjá í VOGUE) sem draga hratt úr bólum án þess að erta húðina. Bóluhreinsirinn er náttúruleg lausn gegn bólum og dagkremið jafnar húðina ásamt því að gefa fallegan ljóma. P.S. Búðu þig undir að segja bless við bólurnar!

 

Smelltu til að lesa um náttúrulega meðferð við bólum.

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

2x 50 ml

Lýsing

Notkun: Notaðu bómull eða eyrnapinna til að bera bóluhreinsinn á bólur þrisvar til sex sinnum á dag. Leyfðu að þorna og berðu dagkremið svo yfir. Best er að bera dagkremið á einu sinni á dag á morgana. Hristist fyrir notkun. Athugaðu að bóluhreinsirinn er ekki andlitsvatn til að bera á allt andlitið, heldur bara á bólurnar sjálfar. Má líka nota á bak og önnur bólótt svæði á líkamanum. Má nota á meðgöngu.

BÓLUHREINSIR

Áhrif:

  • Náttúruleg lausn gegn bólum og fílapenslum
  • Bólgueyðandi og sótthreinsandi
  • Róar og dregur úr pirringi í húð

Geymsluþol: Bóluhreinsirinn er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Bóluhreinsirinn er framleiddur oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hans. Geymist við stofuhita.

DAGKREM

Áhrif:

  • Jafnar húð og gefur fallegan ljóma
  • Sérstaklega gott fyrir bólur og blandaða húð
  • Mjög gott eftir rakstur
  • Inniheldur náttúrulega sólarvörn
  • Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum

Húðgerð: Fyrir venjulega, viðkvæma, feita og blandaða húð.

Geymsluþol: Dagkremið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Ég mæli hiklaust með bóluhreinsinum og eftir að ég fór að nota dagkremið líka bjargaði það gjörsamlega húðinni. Bóluhreinsir og dagkrem frá Önnu Rósu er besta combóið til að vera með góða húð, ég hef aldrei verið svona góð eins og núna!

Sóldís Fannberg

Ég hef notað vörurnar frá Önnu Rósu frá 2017 og það er ekki af ástæðulausu afhverju ég nota þær ennþá í dag, 2 árum síðar. Mér finnst öll kremin frábær, bæði rakagefandi og halda húðinni mjúkri. Á hverju kvöldi þegar ég þríf á mér andlitið þá nota ég dagkremið frá Önnu Rósu og svo nota ég bóluhreinsinn hennar á allar bólur, stórar sem smáar og á fílapensla. Þannig tekst mér að halda húðinni hreinni, fallegri og mjúkri!

Jónína Þórdís Karlsdóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Bóluhreinsir

32% styrkleiki af vínanda, vallhumall* (Achillea millefolium), garðablóðberg* (Thymus vulgaris), blóðberg* (Thymus praecox) morgunfrú* (Calendula officinalis).

Dagkrem

Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, E vítamín (tocopherol), lavender* (Lavendula officinalis).

Endurvinnsla

  • 100% endurvinnanleg glerflaska/krukka
  • 100% endurvinnanlegur tappi/lok úr polypropylene/polyethylene plasti
  • 100% endurvinnanlegar umbúðir – FSC vottaður pappír úr sjálfbærum skógum
  • Blek er unnið úr náttúrulegu endurnýtanlegu hráefni

122 umsagnir um Pakkatilboð – bólur

  1. Sóldís fannberg

    Ég mæli hiklaust með bóluhreinsinum og eftir að ég fór að nota dagkremið líka bjargaði það gjörsamlega húðinni. Bóluhreinsir og dagkrem frá Önnu Rósu er besta combóið til að vera með góða húð, ég hef aldrei verið svona góð eins og núna!

  2. Anonymous (verified owner)

  3. Sigríður (verified owner)

    Frábærar vörur. Get mælt með.

  4. Aron (verified owner)

    Sé mikinn mun á bólunum, virkar mjög vel!

  5. Þórunn Benný (verified owner)

    Keypti fyrir unglings son minn bóluhreinsi og dagkrem þar sem bólur voru farnar að valda honum mikilli vanlíðan. Eftir aðeins 3ja daga notkun hefur húðin hjá honum lagast mikið og drengurinn öruggari með sjálfan sig. Þar sem hann sá sjálfur árangur á fyrstu dögunum varð hann mun duglegri að sinna húðinni.

  6. Eyrún Sævarsdóttir (verified owner)

  7. Embla Sól Arnarsdóttir (verified owner)

  8. Harpa Hilmarsdóttir (verified owner)

  9. Guðrún Ósk Óskarsdóttir (verified owner)

  10. Edda (verified owner)

  11. Jónína Þórdís

    Ég hef notað vörurnar frá Önnu Rósu frá árinu 2017 og það er ekki af ástæðulausu afhverju ég nota þær ennþá í dag, 2 árum síðar. Mér finnst öll kremin frábær, bæði rakagefandi og halda húðinni mjúkri. Á hverju kvöldi þegar ég þríf á mér andlitið þá nota ég andlitskremið frá Önnu Rósu og svo nota ég bóluhreinsinn hennar á allar bólur, stórar sem smáar og á fílapensla. Þannig tekst mér að halda húðinni hreinni, fallegri og mjúkri!

  12. Anonymous (verified owner)

  13. Arnbjörg Baldvinsdóttir (verified owner)

    Frábærar vörur!

  14. Anonymous (verified owner)

  15. Marín Hrund (verified owner)

  16. Anonymous (verified owner)

    Mjög góðar vörur sem virka mjög vel.

  17. Þóra (verified owner)

    Þessar vörur eru það allra besta sem ég hef prufað á dóttur mína. Hún var orðin mjög slæm og var ég búin að prufa ýmislegt. Rakst síðan á þessa auglýsingu og sló til.
    Eftir nokkra daga sá ég mun á stelpunni. Svo þetta er að virka og mun hiklaust mæla með þessum vörum.
    Takk kærlega fyrir okkur. 😊

  18. Svala Ósk Sævarsdóttir (verified owner)

  19. Karen Jónsdóttir (verified owner)

    Húðin mín varð mjög slæm bara upp úr þurru og mér fannst ekkert virka á hana. Ég datt svo niður á þennan pakka og ég sé þvílíkan mun á húðinni minni, eftir að hafa notað þetta í aðeins í rúma viku.

  20. Alexandra Björk L. (verified owner)

    Farin að sjá mun á mér!

  21. Harpa (verified owner)

    Ákvað að prufa kaupa þennan bólupakka þar sem ég hef verið að glíma við töluvert af bólum í svolítið langan tíma, sem koma alltaf aftur og aftur á sömu staðina ásamt því að vera með slatta af fílapenslum út um allt andlit. Ég var í rauninni bara búin að gefast upp á því að reyna finna eitthvað bólutengt sem gæti hjálpað bólunum/fílapenslunum að fara, þar sem ég er með mjög þurra og viðkvæma húð og hef verið að glíma við exem alveg síðan ég var barn og þoli þar af leiðandi ekki mikið af húðvörum. Eina sem stoppaði mig í því að kaupa þessar vörur fyrr var í rauninni bara það að mér fannst þetta smá dýrt, þar sem ég er bara námsmaður og ekki með mikla innkomu. Enn í dag, BARA eftir 10 daga notkun er ég MIKLU BETRI!!! Þannig mér finnst þetta ekki vera spurning um kostnaðinn lengur og mun klárlega kaupa þennan pakka aftur, þegar hitt klárast. Mér finnst líka gott að vita af því að þetta eru alveg „hreinar“ vörur og ekki með alls konar „eitur“ efnum eins og svo margar húðvörur eru í dag. Það sem hjálpaði mér persónulega líka að taka ákvörðunina um að kaupa pakkann voru bara ummælin frá örðum sem höfðu prófað, sem voru allt mjög jákvæðar færslur :). Takk fyrir mig elsku Anna Rósa!

  22. Anonymous (verified owner)

  23. Anna Soffía Björnsdóttir (verified owner)

  24. Anonymous (verified owner)

    15 ára dóttir mín byrjaði að nota þessa tvennu fyrir nokkrum dögum og við erum strax farnar að sjá mun.

  25. Ásdís Ósk (verified owner)

  26. Dísa (verified owner)

    Elska bóluhreinsirinn. hefur bjargað húðinni minni. líkar dagkremið vel.

  27. Anonymous (verified owner)

    Mer finnst þetta virka er strax farinn að sjá mun og bólurnar eru smá saman að fara. :))

  28. Svanhildur (verified owner)

  29. Ingibjörg Sigurðardóttir (verified owner)

    ekki næganleg reynsla komin til að svara..

  30. Marcelina (verified owner)

    Ég er búin að ströggla með bólur í 5 ár og hafði ekki von á því að eitthvað ætti eftir að hjálpa mér. Eftir að vera búin að lesa fullt að góðum orðum um bólupakkan ákvað ég að prófa hann sjálf og vá! hvílikur munur á andlitinu eftir tveggja vikna notkun! Mæli endalaust með þessu og er spennt fyrir því að halda áfram að nota þetta og horfa á húðina mína breytast.

  31. Særún Sigbjartsdóttir (verified owner)

    Alveg frábærar vörur hjálpuðu syni mínum mikið 🙂

  32. Bryndís (verified owner)

    Ég mæli hiklaust með bóluhreinsinum og dagkreminu frá Önnu Rósu. Húðin mín hefur alltaf verið viðkvæmt vandamál en aldrei verið betri eins og eftir að ég fór að nota þetta combó!

  33. Helga B (verified owner)

    Virkar mjög vel fyrir dóttir mína sem er að glíma við unglingahúð..

  34. Helga Ágústsdóttir (verified owner)

    Bóluhreinsirinn svínvirkar á bólurnar.

  35. Linda Andrésdóttir (verified owner)

    Mjög góðar vörur, finn verulegan mun á húðinni á mér

  36. Ólöf Ellertsdóttir (verified owner)

    Sé mikin mun á dóttur minni eftir tæpa viku að nota bólutvennuna. Frábær

  37. Linda Andrésdóttir (verified owner)

    Ég er með rósroða og hef alltaf verið í vandræðum að finna andlitskrem, þetta krem hentar mér ótrúlega vel.

  38. Anonymous (verified owner)

    Frábært kombó

  39. Anonymous (verified owner)

    Geggjuð vara

  40. Bryndis Erlingsdóttir (verified owner)

    Fyrsta skipti sem eg prufa þessar vöru. Sátt enn sem komið er 🙂

  41. Anonymous (verified owner)

    Mjög góðar vörur

  42. Guðrún Huld Kristinsdóttir (verified owner)

    Erfið lykt af bóluhreinsinum

  43. Anonymous (verified owner)

    Nota daglega og sé að virknin er fljót að koma og húðin er strax betri

  44. Anonymous (verified owner)

    Mjög gott! Hef prufað alskonar vörur og maska, þetta virkar best að mínu mati. Sá mikinn mun á mér eftir sirka viku, allt annað!

  45. Kristín Sveinsdóttir (verified owner)

    Jólagjöf svo ekki komin reynsla en hef bara heyrt gott af þessari tvennu.

  46. Hjordis J. (verified owner)

    Sá mun á nokkrum dögum

  47. Nanna Kristjánsdóttur (verified owner)

    Virkilega góðar vörur og virka vel fyrir mig, à eftir að kaupa þetta aftur. Mæli með þessu.

  48. Harpa (verified owner)

    Þessi vara virkar mjög vel ,unglingurinn minn var mjög slæmur en eftir að hann notaði þetta um tíma þá lagaðist hann og er góður í húðinni í dag 🥰

  49. Emma Kolbrún Garðarsdóttir (verified owner)

    frábær vara mæli mjög mikið með, bólurnar farnar á aðeins viku:)

  50. Bryndís Ólafsdóttir (verified owner)

    Virkar vel enn sem komið eru, mín 20 ára er að prófa bólukremið í fyrsta sinn en hefur góða reynslu af bóluhreinsi.

  51. Alona (verified owner)

    It was easy to order. And I get the package very quick. I started to use it just a few days ago so it’s too soon to say about the results. But I like the texture and the smell of the cosmetics.

  52. Anonymous (verified owner)

    Ekki komin mjög mikil reynsla ennþá en þetta lofar góðu.

  53. Sigrún Pálmadóttir (verified owner)

    Frábærar vörur, fljótvirkar og góðar.

  54. Fanney Ólöf (verified owner)

    Unglingurinn á heimilinu er mjög sáttur

  55. Harpa Snædal (verified owner)

    Ótrúlega hröð og góð þjónusta

  56. Anonymous (verified owner)

    Drengurinn er nýbyrjaður að nota vörurnar og þær lofa strax góðu, hlökkum til að sjá þegar líður á 🙂

  57. Anonymous (verified owner)

    Mjög góð vara, dóttirinn er himinlifandi yfir árangrinum.

  58. Kristjana Hilmarsdóttir (verified owner)

    Virkar vel

  59. Anonymous (verified owner)

    Ég er ekki búin að nota nema í örfáa daga

  60. Ásdís Sigurðardóttir (verified owner)

    Sá mun strax eftir tvo daga 🙂

  61. Gunnhildur (verified owner)

    Frábærar vörur

  62. Valdís Heidenreich (verified owner)

    þetta er ekki að hjálpa mér

  63. Anonymous (verified owner)

    Mjög góð vara , hefur alveg bjargað unglingnum mínum

  64. Helga Björk (verified owner)

    Hef áður verið með bóluhreinsir frá þér fyrir stelpuna mín og virkaði vel fyrir hana svo núna með unglingsstrák sem er að prufa og virðist vera virka líka vel á hann.

  65. Elín Margrét Stefánsdóttir (verified owner)

    Keypti þennan bólupakka fyrir dóttir mína sem er að byrja með unglingabólur, sjáum mikin mun á húðin eftir að hún fór að nota þetta. Get hiklaust mælt með þessum vörum. Einnig keypti ég giktarpakka fyrir sjálfa mig og mér finnst mikil bót af því

  66. Anonymous (verified owner)

    Magnað að sjá hversu vel þetta virkar á mjög slæma húð á unglingi. Bólurnar hverfa og húðin grær. Takk fyrir.

  67. Ingunn (verified owner)

    Mjög ánægð keypti þetta handa dóttur minni . Mikill munur 😁

  68. Jónína Kristín Þorvaldsdóttir (verified owner)

    Mjög fljót að sjá mun í húðinni 🙂

  69. Kolbrun (verified owner)

    Fann strax mun á húðinni minni eftir 3 daga. Mæli 100% með.

  70. Berglind (verified owner)

    Mjög góðar vörur og virka vel!

  71. Auður Sigurðardóttir (verified owner)

    Sá mikinn mun á bólunum strax á fyrsta degi

  72. Anonymous (verified owner)

    Bóluhreinsirinn hefur virkað mjög vel á húð sonar míns sem var orðin mjög slæm. Dregið hefur verulega úr bólum, roða og bólgu í húð hans. Mæli hiklaust með þessari vöru.

  73. Hafsteinn G. (verified owner)

    Þetta virkar.

  74. Hulda (verified owner)

    rakakremið er mjög gott og gefur góðan raka án þess að stífla

  75. Maria Jonasdóttir (verified owner)

    Sonur minn er mjög ánægður með þessar vörur

  76. Anonymous (verified owner)

    Buin að nota í u.þ.b 3 vikur og er orðin betri. Bólurnar hafa minnkað 😁

  77. Emilía (verified owner)

    Dásamlegt að setja eitthvað á húðina sem er náttúrulegt og virkar á bólurnar.

  78. Anonymous (verified owner)

    Mjög góðar vörur!

  79. Anna Toher (verified owner)

    Unglingarnir sem fengu vöruna voru mjög ánægð með sjáanlegan árangur eftir tveggja sólarhringa notkun, bólga hjaðnaði, húðin dróst saman og varð bjartari.

  80. Aníta Björk Valgeirsdóttir (verified owner)

    Þessar vörur frá Önnu Rósu hafa hjálpað húðinni minni mjög mikið, mæli eindregið með þeim!

  81. Sigrun (verified owner)

    Frábær vara

  82. Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir (verified owner)

    Virkar mjög vel

  83. Anonymous (verified owner)

    Ég er farin að sjá smá mun eftir rúma viku en húðin er líka sléttari og jafnari. Á eftir að sjá hvernig bóluhreinsinn virkar á næstu vikum.

  84. Anonymous (verified owner)

    Sonur minn hefur verið að nota vörurnar í nokkra mánuði og þær eru að virka mjög vel. Ég veit líka að hann myndi ekki nenna að nota þær ef hann sæi engan árangur:) Takk fyrir okkur.

  85. Eva (verified owner)

    Dóttir mín 14 ára hefur notað kremið og bóluhreinsinn og árangurinn er dásamlegur!

  86. Hildur Björg (verified owner)

    2 vikur síðan sonur minn byrjaði að nota bóluvörnurnar og sjáum strax að þær hafa minkað og hlökkum til að nota áfram og vonandi á en meiri árangur eftir að sjást:)

  87. Anonymous (verified owner)

    Get hiklaust mælt með þessum vörurm, bóluhreinisnum og dagkremið. Ótúlega ánæð með þær. Var fljót að sjá mun á húðinni og eru að bjarga viðkvæmu húðinni minni.

  88. Anonymous (verified owner)

    Varð mjög fljótt sjáanlegur munur a húð sonar míns. Virkar mjög vel, góð vara!

  89. Klara (verified owner)

    Höfum notað vöruna í 2 vikur og líst mjög vel á. Munum kaupa aftur þegar þessar klárast.

  90. Eva (verified owner)

    Þessi tvenna er algjör snilld fyrir unglingsstúlkurnar mínar!

  91. Anonymous (verified owner)

    Bestu húðvörurnar!

  92. Laufey Árnadóttir (verified owner)

    Frábærar vörur

  93. Anonymous (verified owner)

    Virkar vel!

  94. Írena R. (verified owner)

    Ég er ekkert smá ánægð með þessar vörur, bæði boluhreinsinn og dagkremið. Húðin mín hefur ekki verið svona goð í langan tíma. Bólurnar bæði minnkuðu og bólgan minnkar líka. Takk fyrir mig Anna Rósa

  95. Ingunn (verified owner)

    Góðar vörur

  96. Björk Harðardóttir (verified owner)

    Er búin að vera nota þennan pakka síðustu 2 vikur og er að sjá mikinn mun. Hef mikla trú á þessum vörum og finn mikla vellíðan í húðinni eftir notkun!

  97. Jonina Danielsdóttir (verified owner)

    Þetta eru góðar vörur en veit ekki hvort þær virka allveg fyrir mitt andlit og mina húð

  98. Marissa (verified owner)

    My pimples are slowly healing. Although they are still there but they are healing.

  99. Anonymous (verified owner)

    Frábærar vörur!

  100. Sigurbjörg (verified owner)

    Dóttir minni 13.ára finnst þetta best á húðina.

  101. Hildur Margrét Nielsen (verified owner)

    Hröð og góð afgreiðsla, mikil ánægja með vörurnar

  102. Katrín (verified owner)

    Virkar vel á bólótta húð en ekkert spes lykt af bóluhreinsinum. Það kemur reyndar ekkert að sök því við setjum alltaf krem á eftir eins og mælt er með.

  103. Anonymous (verified owner)

    Ég er mjög sáttur við Dagkremið húðin mín var miklu ferskari og mildari eftir að ég byrjaði að nota það svo með bóluhreinsirinn að það tók sirka viku til að sjá árangur og ég er mjög sáttur við hann líka þannig ég gef þessu combói 9.5 af 10 😃

  104. Sara Hrund (verified owner)

    Frábærar vörur! Mæli heilshugar með þessum vörum fyrir unga húð.

  105. Jóna dís (verified owner)

    Mæli 100% með þessum vörum sé mikinn mun á húðinni var búin vera nota allskonar bólukrem án árangurs og eftir að ég byrjaði nota bóluhreinsin og dagkremið frá Önnu Rós loksins orðin góð í húðinni og dóttir mín sem er unglingur notar vörunar líka og ég sé mikinn mun á henni lika.

  106. Guðrún E. (verified owner)

    Dóttir mín var mjög slæm af bólum og eftir nokkra daga sáum við mikin mun, sérstaklega á bólum við hársvörð. Dagkremið er líka mjög gott og nærir húðina vel.

  107. Eva (verified owner)

    Frábær vara!!!

  108. Margrét Beck (verified owner)

    Love it

  109. Þorsteinn M Ragnarsson (verified owner)

    Frábært

  110. Eva (verified owner)

    Ég er með blandaða húð og hef auk þess verið að glíma við hormónabólur en þetta eru einu vörurnar sem virka á húðina mína! Kaupi þennan pakka aftur og aftur 🙂

  111. Jóhanna Guðnadóttir (verified owner)

    Dóttir mín hefur notað vörurnar í Bólupakkanum í að verða tvö ár með mjög góðum árangri.
    Hún var með mjög mjög slæmt tilfelli af bólum í andliti og með hjálp daglegrar notkunar bóluhreinsins og dagkremsins þá hefur hún náð að halda andlitinu góðu og í stað þess að andlitið sé alsett bólum kemur nú aðeins ein og ein bóla, sem er fljót að fara með hjálp bólupakkans.
    Það er gríðalega jákvætt að hafa svona áhrifaríka vöru úr náttúrulegum efnum sleppa við sterkari lyfjagjöf þegar slæm tilfelli verða af hormónabólum á þessum viðkvæma aldri.
    Við mæðgur mælum með.
    Takk fyrir okkur.

  112. Anonymous (verified owner)

    Algerlega frábært, virkar mjög vel á bólur hjá unglingnum mínum

  113. Sif Árnadóttir (verified owner)

    Frábær þjónusta og klárlega gæða vörur 🥰

  114. Alexandra Björk Þorgrímsdóttir (verified owner)

    geggjuð vara

  115. Anonymous (verified owner)

    Virkar mjög vel á húðina hjá dóttur minni

  116. Heiðrún Jóna Óðinsdóttir (verified owner)

    Allar bólur farnar eftir 2 vikur. Algjört kraftaverk

  117. Anonymous (verified owner)

    Barnabarnið mitt sem er 15 ára er að nota vörurnar, henni finnst hún ekki sjá nógu mikinn árangur enn sem komið er eftir að vera að nota bólubanann, ég sagði henni að þetta tæki tíma, dagkremið finnst henni mjög gott

  118. Unnur Erlendsdóttir (verified owner)

    Elska þetta var ekkert spes lykt af kreminu fyrst en er farin að venjast henni

  119. Eva D. (verified owner)

    Ég kaupi þessa vörur aftur og aftur og aftur einfaldlega vegna þess að þær virka!

  120. Ragnhildur Einarsdottir (verified owner)

    Það litla sem við erum búinn að prófa fynnst mér eins og bólurnar hafi hjaðnað aðeins

  121. Tinna Björnsdóttir (verified owner)

    Best á bólurnar!

  122. Hrafnhildur (verified owner)

    Unglingurinn er hæstánægður 😃

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top