Triphala kemur jafnvægi á meltinguna
Triphala er einna þekktast fyrir að koma jafnvægi á meltinguna og þá sér í lagi sem hægðalosandi. Triphala er ekki nafn á einni jurt heldur heiti á ævafornri blöndu af þremur indverskum ávöxtum: Haritaki (Terminalia chebula), bibhitaki (Terminalia bellirica) og amalaki (Emblica officinalis) í jöfnum hlutföllum. Ertu móðurlaus? Triphala er ein elsta og þekktasta [...]
Besta meðlætið á vorin
Ég er á því að steikt fíflablóm og fíflablöð séu besta meðlætið á vorin. Túnfífill vex út um allt og því er auðvelt að tína hann sér til matar. Fíflablöðin eru sneisafull af vítamínum og næringarefnum og því um að gera að borða sem mest af þeim þegar tækifæri gefst. Fífillinn er ekki aðeins góður til matar, hann er [...]
Meðganga, brjóstagjöf og ungbörn: hvaða jurtir eru öruggar?
Ég fæ oft þessa spurningu: „Er öruggt að nota þessa jurt á meðgöngu?“ Að sama skapi fæ ég reglulega fyrirspurnir um hvaða jurtir sé óhætt að nota fyrir brjóstagjöf og ungbarnið. Þess vegna fannst mér kominn tími til að gera yfirlit yfir þær jurtir sem ég mæli með og veit að eru öruggar fyrir meðgöngu, brjóstagjöf og ungbörn. Vafalaust [...]
Er túrmerik allra meina bót?
Túrmerik (Curcuma longa) er án nokkurs vafa allra meina bót, en notkun þess sem krydd- og lækningajurtar er ævagömul bæði á Indlandi og í Kína. Það hefur óvenju fjölbreyttan lækningamátt, en undanfarna áratugi hafa margar vísindarannsóknir staðfest hefðbundna notkun þess til lækninga. Ekkert krydd er jafn vinsælt til rannsókna í heiminum í dag og túrmerik. [...]
Vissirðu að kamilla er öflugur rakagjafi?
Kamilla er einstaklega góð jurt fyrir þurra húð því hún er öflugur rakagjafi ásamt því að róa húðina. Hún hefur bólgueyðandi áhrif og viðheldur langvarandi raka í húðinni. Kamillute er vel þekkt enda hefur kamilla verið notuð sem lækningajurt frá örófi alda. Hvernig ég nota kamillu Kamilla vex ekki villt hérlendis og er ekki [...]
Besta vegan súpan
Ég er mikill aðdáandi listakokksins Ottolenghi og dýrka matreiðslubækurnar hans. Þessi ljúffenga vegan súpa er úr bókinni Simple en eins og nafnið gefur til kynna eru einfaldar uppskriftir í þeirri bók. Ég hef breytt uppskriftinni lítillega og í raun einfaldað hana enn frekar. Þessa fljótlegu súpu hef ég eldað margoft fyrir vini mína og undantekningalaust hafa þeir beðið mig [...]