Anna Rósa mælir með að taka báðar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða, ásamt ashwagandha, í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.
Magn: Burnirót 200 ml og lion’s mane sveppaduft 120 g.
Notkun – Burnirót: 1 tappi með morgunmat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.
Notkun – Lion’s mane sveppaduft: 1 tsk á dag með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.
Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol: Tinktúran Burnirót er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita. Lion’s mane sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Sveppaduftið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.
Varúð: Burnirót: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.
Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar. |
Vilborg Karlsdóttir (verified owner) –
Eiríkur tryggvason (verified owner) –
Berglind Kvaran Ævarsdottir (verified owner) –
Flottar vörur
Anonymous (verified owner) –
Mjög gott.
Anonymous (verified owner) –
Bætir svefninn minn, fæ góða slökun fyrir taugakerfið. Lundin verður því léttari.
Esther (verified owner) –
Þetta var gjöf. Geri ráð fyrir að þetta virki vel
Guðrún (verified owner) –
Allt mjög virkt
Anonymous (verified owner) –
mjög öflugar remedíur!
INGA Matthiasd (verified owner) –
Góðar vörur
Helga Hjaltadóttir (verified owner) –
Tók inn skv. ráðlögðum skammti samt bara eina tsk. eða msk. og einu sinni á dag. Tók líka ASWAGANDHA einu sinni á dag. Eftir 3 daga var ég komin með stöðugan höfuðverk og hætti þá allri inntöku. Veit ekki hvað ég á að gera næst.
Anna Rósa grasalæknir (store manager) –
Sæl Helga, það er virkilega leitt að heyra að þetta hefur farið svona í þig. Það hljómar eins og þú sért með óþol fyrir einhverri jurtinni í þessum pakka, það er sjaldgæft en er samt alltaf möguleiki. Ég ætla að ráðleggja þér eftirfarandi ef þú ert til í að prófa aftur. Bíða núna í 3 daga og taka svo 1/2 tsk á dag af Lion‘s mane í 3 daga. Ef það fer vel í þig og þá skaltu bæta við teinu en bara 1 tsk í bolla, 1 bolla á dag í 3 daga. Ef það gengur þá skaltu bæta við ½ tsk á dag (blanda út í vatn) af ashwagandha í 3 daga. Síðast skaltu svo prófa burnirót ½ tsk (blanda út í vatn) á dag og sjá hvernig það fer í þig. Ef þetta fer allt vel í þig núna geturðu gert tilraunir með að auka skammtastærðirnar upp í fulla skammta en passaðu að gera það bara fyrir eina vöru í einu. Sumir þurfa líka einfaldlega minni skammtastærðir en aðrir. Endilega láttu okkur vita á onnuson@annarosa.is hvernig þetta gengur og ef þú ert með einhverjar frekari spurningar. Gangi þér vel!
Alfreð Sigurjónsson (verified owner) –
Þetta lofar góðu ég þarf bara að vera duglegur að nota þetta reglulega og koma mér upp rútínu. 😃
Margrèt (verified owner) –
Mér finnst þessar vörur vera að virka vel fyrir mig.
Anonymous (verified owner) –
Þetta er að virka mjög vel fyrir mig
Elín Helena (verified owner) –
Tók líkama minn um hálfa tinktúru að venjast en finn mikið fyrir aukinni einbeytingu og orku frá burnirótinni. Finnst ég muna meira með hjálp Lions Mane. Teið mjög bragðgott
Sigrún Á. (verified owner) –
Erum mjög ánægð með þessar vörur.
Ásta margrét Heimisdottir (verified owner) –
Virkar mjög vel
Sigrún Á. (verified owner) –
Góðar vörur sem eru alveg að virka. Tekur nokkrar vikur til að fá fulla virkni👏🏼