Magabólgute (íslenskt)

1.990 kr.

(6 umsagnir frá notendum)
  • Bólgueyðandi og sýrustillandi
  • Við bakflæði, brjóstsviða og háum magasýrum
  • Við magabólgum, magasárum og meltingartruflunum
  • Græðir og verndar slímhúð maga

Þessi teblanda er í pakkatilboðinu – bakflæði og magabólgur

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

40 g

SKU: 2231 Category:

Lýsing

Anna Rósa mælir með samfelldri notkun í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Notkun: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Magabólgute er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Teið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er, en í flestum tilvikum afgreiðum við pantanir samdægurs eða næsta virka dag. Hægt er að velja kvölddreifingu með TVG frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Mjaðjurt* (Filipendula ulmaria), kamilla* (Matricaria recutita), hvannarfræ* (Angelica archangelica), morgunfrú* (Calendula officinalis), vallhumall* (Achillea millefolium).

6 umsagnir um Magabólgute (íslenskt)

  1. Anna Berglind (verified owner)

    Líður betur í maganum, virkar á mig

  2. Sigríður Halldórsdóttir (verified owner)

    Ég hef verið með krónískar magabólgur í tugi ára en getað yfirleitt haldið þeim niðri með lyfjum. Fyrir stuttu þurfti ég að byrja á tveimur nýjum lyfjum sem algerlega fóru með magann á mér þótt ég hafi verið sett á margfalt sterkari magalyf. Ég leitaði til Önnu Rósu sem útvegaði mér magabólgute. Ég drekk það 3-4 sinnum á dag og set út í það smá kanil og hunang. Algert sælgæti! Árangurinn er ótrúlegur! Ég hef ekki fundið fyrir verkjum í maganum síðastliðna 3 daga. Ég fer ekkert að hætta á magabólguteinu á næstunni. Takk takk Anna Rósa!

  3. Merete (verified owner)

    Goð te að koma magan í gang með eftir botnlungabólgu

  4. Susanne Neumann (verified owner)

    Gott á bragðið, virkar vel

  5. Harpa Lind Vilbertsdóttir (verified owner)

    Magabólgu te slær strax á ,

  6. Valgerður (verified owner)

    Búin að prufa í nokkra daga, finnst ég strax finna mun.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top