Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu annarosa.is. Eigandi er Anna Rósa grasalæknir ehf., kt. 531108-1080, Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík, sem framleiðir húðvörur og fæðubótarefni úr jurtum.
Pantanir
Pantanir eru aðeins afgreiddar þegar greiðsla hefur borist og þá er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Anna Rósa grasalæknir ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Afhendingartími
Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Vörum er dreift með Eimskip. Heimsending á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu er afhent frá kl. 17-22 eftir að pöntunin hefur verið afgreidd. SMS er sent um áætlaðan komutíma. Einnig er hægt að velja að sækja í box á öllu landinu eða á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni. Því miður er ekki í boði að sækja vörur til Önnu Rósu. Sé varan ekki til á lager mun Anna Rósa grasalæknir ehf. hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða endurgreiða vöru ef þess er óskað.
Sendingarkostnaður
Það er enginn sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira.
Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
- Sækja í box: 990 kr.
- Heimsending á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
- Heimsending á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
- Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.
Því miður er ekki hægt að sækja pantanir til Önnu Rósu, allar pantanir eru undantekningarlaust sendar með Eimskip.
Persónuupplýsingar
Á annarosa.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndarstefnu kemur fram hvernig Anna Rósa grasalæknir ehf. vinnur með þær persónuupplýsingar sem félagið geymir um kaupanda og hvaða rétt hann á varðandi þær upplýsingar.
Greiðslur
Hægt er að greiða á annarosa.is með visa electron, maestro og mastercard debit- og kreditkortum. Öll vinnsla kreditkortaupplýsinga fer fram í öruggri greiðslugátt hjá Rapyd greiðslumiðlun (Kortaþjónustan).
Verð
Öll verð í vefverslun eru uppgefin í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, myndabrengl eða prentvillur og geta breyst án fyrirvara.
Skilaréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ef um er að ræða pakkatilboð er aðeins hægt að skila öllum pakkanum, ekki einstaka vörum í pakkatilboðinu. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Tilkynna þarf Önnu Rósu grasalækni ehf. með tölvupósti á onnuson@annarosa.is um fyrirhuguð skil og kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Hægt er að koma með vöru sem ætlunin er að skila í verslun Önnu Rósu grasalæknis á Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík á opnunartíma. Verslunin er opin á fimmtudögum og föstudögum frá kl 12-16. Ekki er hægt að koma og skila vörum í verslun fyrir utan opnunartíma. Einnig er hægt að senda vöruna sem á að skila með pósti á eftirfarandi heimilisfang:
Anna Rósa grasalæknir ehf.
Langholtsvegur 109
104 Reykjavík
Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Endursending er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema um sé að ræða gallaða/ranga vöru. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Tjón
Öllum pöntunum er dreift af Eimskip og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Eimskips um afhendingu vörunnar. Anna Rósa grasalæknir ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Önnu Rósu grasalækni ehf. til viðkomanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Staðbundið námskeið
Námskeiðsgjald fyrir staðbundið námskeið (ekki netnámskeið) er eingöngu endurgreitt ef látið er vita 10 dögum fyrir dagsetningu námskeiðs. Athugið að það er ekki endurgreitt ef viðkomandi mætir ekki á námskeiðið hvort sem það er vegna veikinda, veðurs eða af öðrum ástæðum. Það er heldur ekki hægt að mæta á annað námskeið síðar í staðinn fyrir námskeiðið sem ekki var mætt á.
Galli
Komi upp óvæntur galli á vöru við komu til kaupanda skal Anna Rósa grasalæknir ehf. ráða bót á gallanum og láta hann hafa nýja vöru án endurgjalds og aukakostnaðar eða endurgreiða ef þess er óskað.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Anna Rósa grasalæknir ehf. heitir fullum trúnaði vegna persónuupplýsinga sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Lesa persónuverndarstefnu.
Ágreiningur
Ef ágreiningur rís á milli kaupanda og seljanda um efni þessara skilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Rísi mál vegna þessa samnings skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.