Pakkatilboð – viðbótarmeðferð

Original price was: 23.970 kr..Current price is: 21.490 kr..

(2 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna mjólkurþistil og túrmerik, turkey tail og reishi sveppaduft og tinktúruna ashwagandha. Þessi pakki er ætlaður sem viðbótarmeðferð gegn krabbameini en kemur ekki í staðinn fyrir hefðbundna lyfja- og geislameðferð. Smelltu til að lesa um viðbótarmeðferð gegn krabbameini.

 

  • Inniheldur jurtir sem rannsakað er að hamla vexti krabbameinsfrumna
  • Inniheldur sveppi sem geta aukið lífslíkur og lífsgæði krabbameinsjúklinga
  • Styrkir ónæmiskerfið
  • Andoxandi og bólgueyðandi
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Anna Rósa mælir með því að taka triphala töflur samhliða þessu pakkatilboði.

 

Mjólkurþistill og túrmerik 200 ml, turkey tail og reishi sveppaduft 120 g og ashwagandha 200 ml

Lýsing

Anna Rósa mælir með samfelldri notkun og að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. þrjá til sex mánuði þegar um langvarandi veikindi eins og krabbamein er að ræða.

Magn: Mjólkurþistill og túrmerik 200 ml, turkey tail og reishi sveppaduft 120 g og ashwagandha 200 ml.

Mjólkurþistill og túrmerik: 1 tappi þrisvar á dag með mat. Setjið 1 tappa í bolla og hellið sjóðandi vatni á, látið kólna og drekkið volgt eða kalt. Eins má setja 1 tappa út í heitt jurtate. Vínandinn í tinktúrunni gufar að hluta til upp þegar hún er látin út í sjóðandi vatn. Hristist fyrir notkun.

Turkey tail og reishi sveppaduft: 2 msk á dag með mat. Hrærist út í vatn, graut, hristinga eða safa. Athugið að sveppaduft leysist ekki að fullu upp í vökva og skal drekka botnfallið líka.

Ashwagandha: 1 tappi á dag með mat. Setjið 1 tappa í bolla og hellið sjóðandi vatni á, látið kólna og drekkið volgt eða kalt. Eins má setja 1 tappa út í heitt jurtate. Vínandinn í tinktúrunni gufar að hluta til upp þegar hún er látin út í sjóðandi vatn. Hristist fyrir notkun.

Geymsluþol: Tinktúran Mjólkurþistill og túrmerik og tinktúran Ashwagandha eru með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Turkey tail og reishi sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Varúð:

Mjólkurþistill og túrmerik og Ashwagandha: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Turkey tail og reishi: Þeir sem eru með ofnæmi gegn sveppum eða myglu ættu ekki taka turkey tail og reishi. Í stórum skömmtum geta þessir sveppir valdið meltingartruflunum og niðurgangi. Hætta skal notkun á öllum jurtum og sveppum a.m.k. einni viku fyrir skurðaðgerð. Túrmerik og reishi getur mögulega aukið blæðingar og hafa skal það í huga fyrir þá sem eru á blóðþynnandi lyfjum. Sjaldgæfar aukaverkanir ef reishi eru ógleði og svefnleysi samhliða lyfjameðferð gegn krabbameini. Mögulegar aukaverkanir af eingangraða efninu PSK í turkey tail eru dökkar hægðir og dekkri neglur á fingrum samhliða lyfjameðferð gegn krabbameini, en slíkar aukaverkanir get einnig verið af völdum lyfjameðferðarinnar sjálfrar.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Mjólkurþistill og túrmerik:

29% styrkleiki af vínanda, mjólkurþistill* (Silybum marianum), túrmerik* (Curcuma longa), blákolla* (Prunella vulgaris), túnfíflarót* (Taraxicum officinale), króklappa* (Arctium lappa), gentian* (Gentiana lutea), svartur pipar* (Piper nigrum).

Turkey Tail og Reishi sveppaduft:

Reishi sveppaduft* (Ganoderma lucidum),

Turkey Tail sveppaduft* (Trametes versicolor).

.Ashwagandha:

45% styrkleiki af vínanda, ashwagandha* (Withania somnifera).

 

2 umsagnir um Pakkatilboð – viðbótarmeðferð

  1. Rannveig (verified owner)

    Ég hef notað þennan pakka í nokkrar vikur og er ánægð og þakklát fyrir hann. Er með krabbamein sem ég er að meðhöndla með náttúrulegum aðferðum (matur sem lyf, jurtir ofl.), þessi pakki er eitt af því sem er lykilþáttur í þessari meðferð.

  2. Guðný (verified owner)

    Hef fulla trú á að þetta sé að gera mér gott.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top