Garðabrúða

6.990 kr.

(4 umsagnir frá notendum)
  • Við svefnleysi
  • Róandi og svæfandi
  • Eykur líkur á að sofna og á dýpri samfelldum svefni
  • Dregur úr kvíða og stressi
  • Verkjastillandi og krampastillandi

Tinktúran garðabrúða er í pakkatilboðinu – svefn.

 

Garðabrúða 200 ml

SKU: 2067 Category:

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka garðabrúðu í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.

Magn: Garðabrúða 200 ml.

Notkun – Garðabrúða: 1 tappi fyrir svefn. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran Garðabrúða er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita.

Varúð: Garðbrúða: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 20.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 20.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Garðabrúða:

40% styrkleiki af vínanda, garðabrúða* (Valeriana officinalis).

4 umsagnir um Garðabrúða

  1. Kolbrún Roe (verified owner)

    Mjög gott vegna svefnvandamála

  2. Kolbrún Roe (verified owner)

    1 bolli að kvöldi reddar svefninum hjá mér

  3. Kolbrún Roe (verified owner)

    Einn tappi í vatni á kvöldin og svefninum reddað. Allt betra en andvökunætur.

  4. Berglind Elva Sverrisdóttir (verified owner)

    Garðabrúða er frábær jurt þegar um svefnvanda er að ræða. Hún róar flest líffæri og hefur hjálpað mér mjög mikið með minn svefn. Sofna fljótt og næ betri svefn. Einnig hefur hún hjálpað mér með streitu. Er afar þakklát fyrir hana eftir að hafa verið á svefnlyfjum árum saman sem gerði ekkert gagn til svo langs tíma.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top