Pakkatilboð – kvíði og þunglyndi

15.890 kr.

(14 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 2 vörur: lion’s mane sveppaduft og tinktúruna burnirót.

  • Dregur úr kvíða, stressi og þunglyndi
  • Styrkir taugakerfið
  • Eykur orku og úthald
  • Mælt er með að nota báðar vörurnar samhliða

Anna Rósa mælir með því að taka ashwagandha samhliða þessu pakkatilboði.

 

Smelltu til að lesa um burnirót sem er í þessu pakkatilboði.

 

Burnirót 200 ml og lion’s mane sveppaduft 120 g

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka báðar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða, ásamt ashwagandha, í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.

Magn: Burnirót 200 ml og lion’s mane sveppaduft 120 g.

Notkun – Burnirót: 1 tappi með morgunmat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Lion’s mane sveppaduft: 1 tsk á dag með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran Burnirót er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita. Lion’s mane sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Sveppaduftið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Varúð: Burnirót: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Burnirót:

45% styrkleiki af vínanda, burnirót* (Rhodiola rosea).

Lion’s mane sveppaduft:

Lion’s mane sveppaduft (Hericium erinaceus)*.

14 umsagnir um Pakkatilboð – kvíði og þunglyndi

  1. Vilborg Karlsdóttir (verified owner)

  2. Eiríkur tryggvason (verified owner)

  3. Berglind Kvaran Ævarsdottir (verified owner)

    Flottar vörur

  4. Anonymous (verified owner)

    Mjög gott.

  5. Anonymous (verified owner)

    Bætir svefninn minn, fæ góða slökun fyrir taugakerfið. Lundin verður því léttari.

  6. Esther (verified owner)

    Þetta var gjöf. Geri ráð fyrir að þetta virki vel

  7. Guðrún (verified owner)

    Allt mjög virkt

  8. Anonymous (verified owner)

    mjög öflugar remedíur!

  9. INGA Matthiasd (verified owner)

    Góðar vörur

  10. Helga Hjaltadóttir (verified owner)

    Tók inn skv. ráðlögðum skammti samt bara eina tsk. eða msk. og einu sinni á dag. Tók líka ASWAGANDHA einu sinni á dag. Eftir 3 daga var ég komin með stöðugan höfuðverk og hætti þá allri inntöku. Veit ekki hvað ég á að gera næst.

    • Anna Rósa grasalæknir (store manager)

      Sæl Helga, það er virkilega leitt að heyra að þetta hefur farið svona í þig. Það hljómar eins og þú sért með óþol fyrir einhverri jurtinni í þessum pakka, það er sjaldgæft en er samt alltaf möguleiki. Ég ætla að ráðleggja þér eftirfarandi ef þú ert til í að prófa aftur. Bíða núna í 3 daga og taka svo 1/2 tsk á dag af Lion‘s mane í 3 daga. Ef það fer vel í þig og þá skaltu bæta við teinu en bara 1 tsk í bolla, 1 bolla á dag í 3 daga. Ef það gengur þá skaltu bæta við ½ tsk á dag (blanda út í vatn) af ashwagandha í 3 daga. Síðast skaltu svo prófa burnirót ½ tsk (blanda út í vatn) á dag og sjá hvernig það fer í þig. Ef þetta fer allt vel í þig núna geturðu gert tilraunir með að auka skammtastærðirnar upp í fulla skammta en passaðu að gera það bara fyrir eina vöru í einu. Sumir þurfa líka einfaldlega minni skammtastærðir en aðrir. Endilega láttu okkur vita á onnuson@annarosa.is hvernig þetta gengur og ef þú ert með einhverjar frekari spurningar. Gangi þér vel!

  11. Alfreð Sigurjónsson (verified owner)

    Þetta lofar góðu ég þarf bara að vera duglegur að nota þetta reglulega og koma mér upp rútínu. 😃

  12. Margrèt (verified owner)

    Mér finnst þessar vörur vera að virka vel fyrir mig.

  13. Anonymous (verified owner)

    Þetta er að virka mjög vel fyrir mig

  14. Elín Helena (verified owner)

    Tók líkama minn um hálfa tinktúru að venjast en finn mikið fyrir aukinni einbeytingu og orku frá burnirótinni. Finnst ég muna meira með hjálp Lions Mane. Teið mjög bragðgott

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top