Pakkatilboð – bakflæði og magabólgur

8.990 kr.

(16 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna mjaðjurt og morgunfrú, duft úr regnálmi og magabólgute.

  • Bólgueyðandi og sýrustillandi
  • Við bakflæði, brjóstsviða og háaum magasýrum
  • Gegn magabólgum, magasárum og meltingartruflunum
  • Græðir og verndar slímhúð maga
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Mjaðjurt og morgunfrú 200 ml, regnálmsduft 40 g og magabólgute 40 g.

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að reyna að ná sem mestum árangri.

Magn: Mjaðjurt og morgunfrú 200 ml, regnálmsduft 40 g og magabólgute 40 g.

Notkun – Mjaðjurt og morgunfrú: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Regnálmur – duft: Settu 1-2 tsk. í bolla, helltu sjóðandi vatni á og hrærðu. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag á milli mála. Má bragðbæta með kanil.

Notkun – Magabólgute: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran Mjaðjurt og morgunfrú er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Regnálmsduftið er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Magabólgute er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Allar vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Varúð: Mjaðjurt og morgunfrú: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Mjaðjurt og morgunfrú:

30% styrkleiki af vínanda, mjaðjurt* (Filipendula ulmaris), morgunfrú (Calendula officinalis), vallhumall (Achillea millefolium), sítrónumelissa* (Melissa officinalis), túnfífill (Taraxicum officinale).

Regnálmur:

Regnálmur (Ulmus rubra).

Magabólgute:

Mjaðjurt* (Filipendula ulmaria), kamilla* (Matricaria recutita), hvannarfræ* (Angelica archangelica), morgunfrú* (Calendula officinalis), vallhumall* (Achillea millefolium).

16 umsagnir um Pakkatilboð – bakflæði og magabólgur

  1. Anna Jóna Geirsdóttir (verified owner)

    Ég er gjörn á að fá óþægindi í maga með tilheyrandi þreytu og slappleika. Pakkinn frá Önnu Rósu við þessum kvilla hafa alveg bjargað mér.

  2. Halldóra Jónsdóttir (verified owner)

  3. Hugrún Fanney Hraundal sigurðardóttir (verified owner)

  4. Grazyna Wielgosz (verified owner)

  5. Margrét (verified owner)

  6. Þorkatla (verified owner)

    Hefur virkað vel. Regnálmur er reyndar ótrulega vondur á bragðið en ég finn að það fer vel í magann og kramparnir hafa ekki komið þegar ég tek það fyrir mat.
    Mun klárlega kaupa aftur þennan pakka.

  7. Bergþóra Jósepsdóttir (verified owner)

    snild

  8. Audur Hákonardóttir (verified owner)

    I keypti magabólgu jurtirnar mér til stuðnings yfir jólin þar sem ég taldi að ég kynni að afvegaleiðast eitthvað frá annars nokkuð ströngu mataræði. Ekki komin jól svo ekki er full reynsla en mér líkar þessi ákvörðun vel og trúi að þetta hafi verið heillakaup.

  9. Anonymous (verified owner)

    Ætla að nota þetta eftir jólin.

  10. Grímur (verified owner)

    Virkar vel

  11. Hafsteinn G. (verified owner)

    þetta virkar.

  12. helga Jörundsdóttir (verified owner)

    Alveg frábærar

  13. Sylwia G. (verified owner)

    Þessi er frábær.það hjálpaði mér.

  14. Hjördís Sigfúsdóttir (verified owner)

    Mjőg góðar vőrur, ég elska 24 stunda kremið. Bakflæði og magabólgur pakkinn gerði svo sannarlega sitt gagn, allt stóðst sem þú varst búin að fræða mig um Anna Rósa. Kærar þakkir

  15. Margret Benediktsdottir (verified owner)

    Þetta virkaði mjög vel, er búin með magabólguteið og vökvann og er miklu betri í maganum, er að klára regnálminn, öllu erfiðara að koma honum niður en það hefst 😊 takk kærlega fyrir mig, mjög góðar vörur.

  16. Lind Völundardóttir (verified owner)

    það var flókið að taka alltaf svona oft og ég er enn með geðveikan brjóstsviða.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top