Pakkatilboð – ónæmiskerfið

12.490 kr.

(19 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna sólhatt og hvönn, reishi sveppaduft og teblöndu fyrir ónæmiskerfið.

  • Sérvaldar jurtir sem styrkja ónæmiskerfið
  • Forvörn gegn kvefi, flensu, hósta og hálsbólgu
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Sólhattur og hvönn 200 ml, reishi sveppaduft 60 g og te fyrir ónæmiskerfið 40 g

Sjá forvarnarskammt og fulla skammtastærð í lýsingu. 

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Magn: Sólhattur og hvönn 200 ml, reishi sveppaduft 60 g og teblanda fyrir ónæmiskerfið 40 g.

Forvarnarskammtur – Sólhattur og hvönn: 1 tappi á dag með morgunmat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Forvarnarskammtur  – Reishi sveppaduft: 1 tsk á dag með morgunmat. Hrærðu út í heitt vatn, graut eða safa.

Forvarnarskammtur  – Teblanda fyrir ónæmiskerfið: Settu 1 msk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu tvo bolla á dag.

Fullur skammtur – Sólhattur og hvönn: 1 tappi þrisvar á dag. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Fullur skammtur  – Reishi sveppaduft: 1-2 tsk á dag með morgunmat. Hrærist út í heitt vatn, graut eða safa.

Fullur skammtur  – Teblanda fyrir ónæmiskerfið: Settu 1 msk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu fjóra bolla á dag.

Geymsluþol: Tinktúran Sólhattur og hvönn er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Reishi sveppaduft er með 3 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Teblanda fyrir ónæmiskerfið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Vörurnar eru framleiddar oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika. Geymist við stofuhita.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Varúð: Sólhattur og hvönn: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Ég er astma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis- og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana.

Inga Harðardóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Sólhattur og hvönn:

40% styrkleiki af vínanda, hvönn* (Angelica archangelica), sólhattur* (Echinacea angustifolia), vallhumall* (Achillea millefolium), garðablóðberg* (Thymus vulgaris), engifer* (Zingiber officinalis), cayennepipar* (Capsicum sp.).

Reishi sveppaduft:

Reishi sveppaduft (Ganoderma lucidum).

Teblanda fyrir ónæmiskerfið:

Íslensk mjaðjurt (Filipendula ulmaria), íslenskur vallhumall (Achillea millefolium), íslensk hvannarfræ (Angelica Archangelica).

19 umsagnir um Pakkatilboð – ónæmiskerfið

  1. Ágústa H. (verified owner)

    Ég fann næstum strax að einkennin minnkuðu, þ.e.a.s. Kvef einkennin nefstífla og hósti, fæ mér pottþétt þennan pakka aftur næst.

  2. Björn Jónsson (verified owner)

    Vona það besta, ekki mikil reynsla enn

  3. Katrín Þorbjörg Andrédóttir (verified owner)

    Er að nota þetta í fyrsta skipti og er mjög ánægð hingað til en ekki er komin mikil reynsla ennþá

  4. Ulla Rolfsigne Pedersen (verified owner)

    Ég mæli með að nota jurtir til að styrkja ónæmiskerfi okkar. Það hef ég gert í mörg ár og hefur það reynst mér vel.

  5. Signý S. (verified owner)

    Hef verið að njóta vörur frá Önju Rósu í nokkur ár og er alltaf jafn ánægð bæði með vörurnar og þjónustu hennar.
    Mæli eindregið með þessum pakka til styrkingar á ónæmiskerfi

  6. Lara Jonsdottir (verified owner)

  7. Guðlaug Snorradóttir (verified owner)

    Þetta eru greinilega frábærar vorur tek þetta inn þrisvar á dag og finn styrkingu mun halda þessu áfram mín líkama til góðs

  8. Þyrí Marta Baldursdóttir (verified owner)

  9. Þrymur Sveinsson (verified owner)

  10. Inga Harðardóttir (verified owner)

    Ég hef í gegnum tíðina notað vörur Önnu Rósu með góðum árangri. Ég ákvað að prófa pakkann til styrktar ónæmiskerfinu til að vera betur í stakk búin til að takast á við það álag sem ég upplifi í dag. Í stuttu máli sagt þá er ég mjög ánægð og finn þegar jákvæðan mun á heilsu og líðan.

  11. Kristín Birna Ólafsdóttir (verified owner)

    Frábær pakki. Teið gott á bragðið og vellíðan sem fylgir því að nota þessar vörur. Takk fyrir mig

  12. Ásdís Ámundadottir (verified owner)

    Mæli eindregið með þessari þrennu ❤✌

  13. Anna Sigurðardóttir (verified owner)

    Gerði gæfumuninn um að ná bata af langvinnri haustflensu! Takk fyrir mig Anna Rósa!

  14. Ágústa H. (verified owner)

    Þessi þrenna hefur haldið kvefpestum frá mér og svo er teið mjög gott.

  15. Kristjana Hilmarsdóttir (verified owner)

    Ekki alveg komin reynsla

  16. Kristjana Sveinsdóttir (verified owner)

    Hef trú á þessu

  17. Birna Vilhjálmsdóttir (verified owner)

    Virkar vel en bragðið mætti vera betra af drykknum 😉

  18. Gunnar Jóhannsson (verified owner)

    Hef notað þessar vörur um hríð og er allur að hressast, mæli hiklaust með vörunum frá Önnu Rósu 🙂

  19. jonina K. (verified owner)

    Góðar vörur sem standa fyrir sínu og frábær og góð þjónusta

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top