Pakkatilboð – blöðrubólga

11.990 kr.

1 til á lager

(5 umsagnir frá notendum)

Þessi pakki inniheldur 3 vörur: tinktúruna beitilyng og buchu, trönuberjahylki og blöðrubólgute.

  • Bakteríudrepandi og bólgueyðandi
  • Gegn blöðrubólgu og þvagfærasýkingum
  • Mælt er með að nota allar vörurnar samhliða

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

Beitilyng og buchu 200 ml, trönuberjahylki 420 mg/60 stk, blöðrubólgute 40 g.

1 til á lager

Lýsing

Anna Rósa mælir með að taka allar vörurnar í þessu pakkatilboði samhliða í a.m.k. einn til þrjá mánuði til að ná sem mestum árangri.

Magn: Beitilyng og buchu 200 ml, trönuberjahylki 420 mg/60 stk, blöðrubólgute 40 g.

Notkun – Beitilyng og buchu: 1 tappi þrisvar á dag fyrir eða eftir mat. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun.

Notkun – Trönuberjahylki: 1 hylki tvisvar á dag á milli máltíða.

Notkun – Blöðrubólgute: Settu 1-2 tsk í bolla, helltu sjóðandi vatni á, láttu standa í a.m.k. 10 mínútur, síaðu jurtir frá. Drekktu þrjá til fjóra bolla á dag.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Tinktúran Beitilyng og buchu er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Tinktúran er framleidd oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hennar. Geymist við stofuhita. Trönuberjahylki eru með 3 ára endingartíma. Geymist við stofuhita. Blöðrubólgute er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Teið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Varúð: Beitilyng og buchu: Geymist þar sem börn ná ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, fólk undir 20 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu.

Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa tínir sjálf allar íslensku lækningajurtirnar á ómenguðum svæðum, en tinktúrurnar eru að langmestu leyti úr ferskum jurtum. Erlendar lækningajurtir eru undantekningarlaust lífrænt vottaðar.

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Beitilyng og buchu:

35% styrkleiki af vínanda, buchu* (Barosma betulina), beitilyng* (Calluna vulgaris), sólhattur* (Echinacea angustifolia), ísl. brenninetla* (Urtica dioica), króklappa* (Arctium lappa), gentian (Gentiana lutea)

Trönuberjahylki:

Trönuber/Organic Cranberry (Vaccinium macrocarpon)*.

Blöðrubólgute:

Buchu* (Barosma betulina), ísl. vallhumall* (Achillea millefolium), ísl. brenninetla* (Urtica dioica), ísl. mjaðjurt* (Filipendula ulmaria).

5 umsagnir um Pakkatilboð – blöðrubólga

  1. Áshildur Sigurðardóttir (verified owner)

    Frábærar vörur.

  2. Guðrún (verified owner)

    Mæli með.

  3. Áslaug Sólveig Guðmundsdottir (verified owner)

    Góður árangur með þessum vörur

  4. Þuríður B. (verified owner)

    Ég mæli eindregið með þessari vöru.

  5. Þuríður Baldursdóttir (verified owner)

    Eftir 3ja mánaða notkun get ég gefið þessum vörum bestu meðmæli, hef getað haldið mér sýkingarfrírri.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top