Lúxusprufa – græðikrem

2.990 kr.

(3 umsagnir frá notendum)

Ertu með kláða? Dreymir þig um húð sem er til friðs? Græðikremið er græðandi, kláðastillandi og bólgueyðandi, allt í senn. Sérhannað gegn þurrki og kláða. Sérlega áhrifaríkt á exem, sóríasis, sár og sprungur. Öflugur rakagjafi fyrir þurra húð.

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

15 ml

 

Græðikrem í fullri stærð (50 ml).

SKU: 1009 Category:

Lýsing

Notkun: Má nota á allan líkamann, þ.m.t. andlit, hársvörð og í kringum augu. Berðu ríkulega á viðkomandi svæði þrisvar á dag eða oftar. Gengur mjög fljótt inn í húðina.

Áhrif:

  • Græðir og róar exem og sóríasis
  • Dregur úr kláða og bólgum
  • Öflugur rakagjafi fyrir þurra húð
  • Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum

Húðgerð:  Fyrir þurra eða skaddaða húð.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Græðikremið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Kremið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Ég notaði græðikremið hennar Önnu Rósu á augnlokin mín þar sem að ég er með exem og má ekki nota sterakrem frá læknum á andlitið, ég sá strax árangur eftir 1 viku og eftir nokkrar vikur var ég alveg laus við kláða og húðin var alveg hætt að flagna af augnlokunum. Ég nota einnig dagkremið hennar Önnu Rósu vegna þess að ég fæ oft þurrkubletti á andlitið og ef ég er dugleg að bera dagkremið á þá verð ég mjúk og fín eftir nokkra daga. Einnig finnst mér mjög gott að nota dagkremið eftir sturtu og áður en ég mála mig.

Guðrún Dís Emilsdóttir

Dóttir mín sjö mánaða hefur verið með afar slæmt exem og eins og þú sérð á myndinni þá hefur það orðið að slæmu sári á hnéinu hennar, en ég er búin að vera í miklu veseni að finna eitthvað krem sem virkar. Ég er búin að nota græðikremið þitt í viku núna, ber á hana þrisavar á dag og árangurinn er ótrúlegur og exemið svo gott sem farið allstaðar. Ég get bara sagt takk fyrir okkur og takk fyrir alla þína vinnu sem liggur í því sem þú gerir!

Berglind Karen Ingvarsdóttir

Dóttir mín sem er 12 mánaða er með svo hrikalega viðkvæma húð að ég er stundum í vandræðum með hana. Hún var með svakalega niðurgangspest í tvær vikur fyrir stuttu síðan og var komin með svo heiftarleg blæðandi sár á bossann að ég endaði með hana niðrá barnaspítala því engin krem voru að virka og ég vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga. Læknirinn mælti nú bara með barnapúðri sem ég keypti EKKI þannig ég græddi ekkert á honum. En svo birtist amman með krem frá þér og ég hafði svo sem engu að tapa og prófað á bossann. Ég lýg ekki þegar ég segi að ég nánast horfði á sárin gróa á barninu á örskömmum tíma. Það var kremið Græðikrem sem gjörsamlega sló öllum hinum kremunum við. Langaði bara að deila þessu og segja í leiðinni takk fyrir okkur!

Silja Rut Ragnarsdóttir og Soffía Ísabella

Græðikremið frá Önnu Rósu hefur virkað mjög vel á sóríasis hjá mér. Ég hef líka tekið inn tinktúruna Rauðsmára og gulmöðru í fjóra mánuði og er orðinn mjög góður í húðinni þrátt fyrir tölverða streitu og vinnuálag.

Kristleifur Daðason

Í 36 ár hef ég glímt við sóríasis og hef lengi leitað að græðandi kremi sem hefði gagnger áhrif á sjúkdóminn. Hef sennilega eins og flestir sóríasissjúklingar prófað öll þau krem sem nöfnum tjáir að nefna. Græðikremið frá Önnu Rósu grasalækni er fyrsta kremið sem hefur á áhrifaríkan og viðvarandi hátt dregið úr bólgum í sárunum og þar sem húðin er þynnst eru blettirnir á undanhaldi. Það er auk þess hæfilega feitt, þannig að ég get borið það á mig á morgnana eftir sturtu, án þess að það smitist í fötin mín. Síðast en ekki síst hef ég losnað við kláðann, sem ég var illa haldin af áður en ég tók að nota græðikremið.

Guðrún Ingólfsdóttir

Mig langaði að segja þér frá því að ég hef oft slasað mig á fótunum og núna fyrir mánuði kom eitt sárið á hægri sköflunginn og á versta stað þar sem blóðstreymið er hvað minnst. Ég ákvað í samráði við hjúkrunarfræðinginn sem skiptir á því að nota græðikremið frá þér og viti menn, smátt og smátt er það að gróa. Það hefur alltaf tekið um tvo mánuði að gróa hjá mér, en ég er með undirliggjandi sjúkdóma eins og Lúpus og Sjögren og hætta á sýkingum mikil. Þetta sár er ljótt, ca. 3 cm og engin húð á því vegna þess það er ekki hægt að sauma vegna þess að húðin er svo viðkvæm og ekki var hægt að plástra þetta saman. Þetta krem þitt er alveg frábært, það hefur komið í veg fyrir það að ég fengi drep, reyndar hefur líka verið notað sýkladrepandi krem í kring en það er samt að vinna vel í sárinu.

Erla Ó. Melsteð

Einu sinni átti ég alls konar krem og ýmisleg krem. Ég átti andlitskrem, fótakrem, handáburð, boddílósjon og svo auðvitað sérstakt krem fyrir exemið. Já og annað krem fyrir þurrkblettina sem alltaf láta á sér kræla á veturna. Þetta voru heilmargar krukkur og túpur og stundum vildi þetta ruglast og týnast hjá mér. En nú er lífið orðið einfaldara. Ég keypti græðikremið frá Önnu Rósu grasalækni fyrst til að prófa á þurrkblettina sem fylgja köldu veðri, og það virkaði vel. Svo varð ég uppiskroppa með handáburð einn daginn, greip græðikremið og það virkaði fínt. Svona hélt þetta áfram þar til græðikremið var orðið eina kremið í húsinu. Miklu betra.

Sæunn Þorsteinsdóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, kvöldvorrósarolía* (Oenothera biennis), E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, lavender* (Lavendula officinalis), piparmynta* (Mentha piperita).

Endurvinnsla

  • 100% endurvinnanleg glerkrukka
  • 100% endurvinnanlegt lok úr polypropylene/polyethylene plasti
  • 100% endurvinnanlegar umbúðir – FSC vottaður pappír úr sjálfbærum skógum
  • Blek er unnið úr náttúrulegu endurnýtanlegu hráefni

3 umsagnir um Lúxusprufa – græðikrem

  1. Sigríður Áslaug (verified owner)

    Nauðsynlegt að eiga á hverju heimili. Ég nota græðikremið þegar þurfa þykir, bæði á mig, börn sem og barnabörn.

  2. Guðbjörg Hulda Stefnisdóttir (verified owner)

    Besta kremið á sprungnar hendur og litlar skrámur

  3. Guðrún Ósk (verified owner)

    Nota þetta á ný tattoo, alger snilld

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top