Lúxusprufa – dagkrem

3.350 kr.

(4 umsagnir frá notendum)

Ertu að leita að hinu fullkomna rakakremi? Dagkremið (sjá í VOGUE) jafnar húðina og gefur henni fallegan ljóma. Mjög rakagefandi. Hentar sérstaklega vel á bólur og blandaða húð. Fullkomið undir farða!

 

Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.

15 ml

 

Dagkrem í fullri stærð (50 ml).

SKU: 1008 Category:

Lýsing

Notkun: Berðu á hreina húð á andliti, hálsi og bringu á morgnana og/eða kvöldin. Gengur mjög fljótt inn í húðina og hentar vel undir farða.

Áhrif:

  • Jafnar húð og gefur fallegan ljóma
  • Sérstaklega gott á bólur og blandaða húð
  • Andoxunarefni sem viðhalda raka
  • Hentar fyrir bæði kynin og er mjög gott eftir rakstur
  • Inniheldur náttúrulega sólarvörn
  • Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum

Húðgerð: Fyrir venjulega, viðkvæma, feita og blandaða húð.

Formúla: 100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. Inniheldur EKKI parabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.

Geymsluþol: Dagkremið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Kremið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.

Ég hef viðkvæma andlitshúð og er gjörn á þurrkubletti. Dagkremið reyndist mjög vel á þurrkublettina og gekk hratt inn í húðina. Ég er mjög ánægð með það enda húðin mjúk og góð eftir notkun.

Ellen María Bergsveinsdóttir

Í mörg ár hef ég árangurslítið leitað logandi ljósi að kremi sem hentar mér. Eftir að ég fór að nota dagkremið frá Önnu Rósu vil ég ekki nota neitt annað. Kremið gengur vel inn í húðina, hefur græðandi áhrif og dregur úr ertingu í húð. Húðin verður silkimjúk og kremið er frábært undir meik. 

Ingunn K. Sigurðardóttir

Mér finnst dagkremið mjög frískandi fyrir andlitið og gefa góðan raka því ég er stundum með þurra húð.

Hlíf Sverrisdóttir

Algengar spurningar

  • Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
  • Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
    • Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
    • Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
    • Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
    • Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.

Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.

Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.

Við afgreiðum pantanir einu sinni til tvisvar í viku, oftast á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja afhendingu í box um land allt eða kvölddreifingu frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.

Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!

Skráðu þig hér!

Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.

Skoða Lúxusprufur

Innihald

*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu

Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, E vítamín (tocopherol), lavender* (Lavendula officinalis).

Endurvinnsla

  • 100% endurvinnanleg glerkrukka
  • 100% endurvinnanlegt lok úr polypropylene/polyethylene plasti
  • 100% endurvinnanlegar umbúðir – FSC vottaður pappír úr sjálfbærum skógum
  • Blek er unnið úr náttúrulegu endurnýtanlegu hráefni

4 umsagnir um Lúxusprufa – dagkrem

  1. Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir (verified owner)

    nærandi og mýkjandi

  2. Hildur Björg (verified owner)

    Hef einungis notað sjálf í nokkra daga en húðin ekki eins olíukennd og hún hefur alltaf verið og engar nýjar bólur en ég fæ alltaf eina og eina svo spennt að sjá eftir lengri tíma:)

  3. Margrét Erlingsdóttir (verified owner)

    Mér finnst gott að nota þetta krem undir farða. Það gengur hratt inn í húðina og gefur henni raka sem ég þarf á að halda.

  4. Guðrún E. (verified owner)

    Kremið er nærandi en ekki of feitt. Mæli með.

Segðu þína skoðun!

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Go to Top