|
Sárasmyrsl |
|
|
|
Græðandi smyrsl með lífrænum lækningajurtum fyrir sár, sprungur og húðkvilla. Sárasmyrslið inniheldur mjaðjurt, haugarfa, vallhumal og birki sem öldum saman hafa verið notaðar gegn sárum og útbrotum. Inniheldur mikið af kakó- og sheasmjöri sem græðir og mýkir.
Sárasmyrslið inniheldur einnig lífræna lavender ilmolíu sem stillir kláða og er þekkt fyrir græðandi áhrif á brunasár.
Án rotvarnaefna.
Sárasmyrslið hennar Önnu Rósu grasalæknis er algjörlega frábært. Það er mjúkt, smitar ekki, gengur vel inn í húðina og er mjög græðandi. Svo lyktar það líka vel.
Hallfríður M. Pálsdóttir, hómópati
Innihald
ólífuolía (olea europea), býflugnavax (cera alba), sheasmjör (butyrospermum parkii)*, kakósmjör (theobroma cacao)*, mjaðjurt* (filipendula ulmaria), haugarfi* (stellaria media), vallhumall* (achillea millefolium), birki* (betula pubescens ), E vítamín (tocopherol), lavender (lavendula officinalis)* *lífrænt
|
Útsölustaðir:
-
Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.
Frá örófi alda hafa verið unnin smyrsl úr lækningajurtum og hefur Anna Rósa grasalæknir notað slík smyrsl með góðum árangri um árabil. Einstaklingsbundið er hvort fólki hentar betur smyrsl eða hvít krem við húðkvillum. Íslensku lækningajurtirnar eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.
|
|