|
Grasaganga í Elliðaárdalnum 4. júní
Anna Rósa grasalæknir og Steinunn Harðardóttir
dagskrágerðarkona hjá RÚV og forsprakki gönguklúbbsins Gönguhrólfs
verða með grasagöngu í Elliðaárdalnum mánudagskvöldið 4. júní frá
20.00-21.30. Skoðaðar verða þær lækningajurtir sem finnast í dalnum og sagt frá
lækningaáhrifum þeirra og leiðbeint með tínslu og þurrkun.
Í dalnum má m.a. finna mjaðjurt, vallhumal, fjallagrös, blágresi, birki,
sigurskúf, hvönn, hóffífil, túnfífil, klóelftingu,
fjalldalafífil, víði, blóðberg, maríustakk, rauðsmára, spánarkerfil og
njóla sem allar eru þekktar lækningajurtir.
Lagt verður af stað frá Rafstöðinni í Elliðaárdal stundvíslega kl. 20.00.
Takmarkaður þátttökufjöldi.
Skráning á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Verð 2.900 kr.
|