|

Í þessari yfirgripsmiklu og vönduðu bók er gerð grein fyrir lækningamætti íslenskra jurta, sögu þeirra og notkun. Í fyrsta skipti í íslensku riti birtist hér einnig umfangsmikil samantekt á þeim vísindalegu rannsóknum sem gerðar hafa verið á íslenskum lækningajurtum, bæði hérlendis og erlendis. Leiðbeint er um notkun, tínslu og þurrkun íslenskra lækningajurta og meðal annars kennt að búa til te, seyði, bakstra og tinktúrur.
Fjöldi glæsilegra ljósmynda prýðir bókina en heiðurinn af þeim á Erling Ólafsson, skordýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands.
„Hér er komin frábær bók þar sem Anna Rósa sameinar vísindalega nálgun og aldagamla þekkingu á íslenskum lækningajurtum. Verkið einkennist af faglegum og ítarlegum lýsingum á jurtum og eiginleikum þeirra ásamt mjög fallegum myndum. Bókin er einstakt uppflettirit sem getur nýst hverjum þeim sem hefur áhuga á íslenskri náttúru í öllum hennar fjölbreytileika – þessi bók á eftir að verða sígilt verk!“
-Dr. Jan Triebel, sérfræðingur í orku- og endurhæfingalækningum
„Bókin er mjög áhugaverð og fræðandi og mun nýtast mér bæði í leik og starfi. Hún er skemmtilegt krydd í tilveruna.“
- Sveinn Kjartansson í Fylgifiskum
Útsölustaðir: Eymundsson, Bónus, Hagkaup, Fjarðarkaup, Mál og menning, Iða, Bóksala stúdenta, A4, Office1, Heilsuhúsin, Yggdrasill, Lifandi markaður, Kokka, Garðheimar, Landnámssetrið, Bókabúðinni Eskja, Skagfirðingabúð, Sunnlenska bókakaffið, Bókabúðin Hamraborg, Gamla matarbúðin, Ditto.is, www.panama.is, www.butik.is og www.femin.is.
|